Blind á ferð um heiminn

Brynja Arth­úrs­dóttir missti sjón­ina fyrir 36 árum en hefur farið í meira en sjö­tíu utan­lands­ferðir, þar sem hún skynjar heim­inn með því að hlusta, þreifa á og finna ævin­týra­legan ilm.

Skýin leika sér þennan vetr­ar­dag. 
Það er hlý­legt heima hjá Brynju. Það er búið að kveikja á lömpum. Tvö hvít raf­magns­kerti standa á borð­stofu­borð­inu.

Nokkur fal­leg mál­verk hanga á veggj­unum. Eitt þeirra sýnir hús við fjörð; sól­ar­lagið er í aðal­hlut­verki.

„Bróðir minn og mág­kona fóru með mig á sýn­ingu hjá Sig­ur­birni Jónssyni mynd­list­ar­manni og ég féll alveg fyrir þessu mál­verki þegar þau lýstu því fyrir mér. Ég man svo vel eftir sól­ar­lag­inu; ég man eftir fal­legu lit­unum – app­el­sínu­gulum, gulum og rauðum. Ég sé alveg lit­ina þegar ég hugsa um það.“

Missti heyrnina á öðru eyranu

Brynja fædd­ist og ólst upp í Reykja­vík og á ung­lings­ár­unum dreymdi hana um að verða hjúkr­un­ar­fræð­ingur, gifta sig og eign­ast börn. 
Hún var 12 ára þegar hún fékk augn­bólgur og 16 ára fór hún að fá verki í liðum, sinum og vöðvum. „Ég fékk heift­ar­legt gigt­ar­kast þegar ég var að verða 17 ára og lá á Land­spít­al­anum í hálft ár.“ Hún segir að læknar hafi haldið að hún væri með liða­gigt. Hún var hins vegar greind með sjald­gæfan band­vefs­sjúk­dóm, Ehlers-Danlos, í Bret­landi um 10 árum síðar.

Brynja vakn­aði á 18 ára afmæl­is­dag­inn og var skyndi­lega orðin heyrn­ar­laus á vinstra eyra. „Það var bara óheppni. Ég fékk kvef­vírus og missti auk þess allt jafn­væg­is­skyn. Heyrnin á vinstra eyra kom ekki aftur en jafn­væg­is­skynið kom eftir tvær vikur. Heyrnin á hægra eyra er í lagi en þetta hefur háð mér dálítið eftir að ég missti sjón­ina af því að mig vantar ster­eóið; það kallar kannski ein­hver í mig og ég veit ekk­ert hvort við­kom­andi er fyrir aftan mig, framan mig eða hvorum megin hann er. Ég er stundum eins og álfur út úr hól.“Hræðsla og reiði

Brynja seg­ist hafa verið með góða sjón á æsku- og ung­lings­ár­unum en hún þurfti að fá sín fyrstu gler­augu þegar hún var rúm­lega tví­tug. Sjúk­dóm­ur­inn hafði áhrif á sjón­ina.

Slys olli því að hún missti sjón­ina á hægra aug­anu þegar hún var 23 ára. Hún datt með þeim afleið­ingum að gler­augun brotn­uðu og stakkst gler inn í hægra augað. 

„Ég missti síðan sjón­ina alveg í nokkra daga þegar ég lá á Landa­koti þegar ég var 25 ára en þá var ég búin að vera mjög slæm í vinstra aug­anu vegna bólgu. Það hvarfl­aði ekki að mér að ég ætti eftir að verða blind. Mér fannst það geta komið fyrir aðra en ekki mig.“

Brynja þegir.

„Vökvi fór að renna úr aug­anu og sjónin bara hvarf. Þá greip mig heift­ar­leg hræðsla og reiði. Reiðin beind­ist að augn­lækn­inum af því að mér fannst hann ekki hafa sinnt mér nóg. Hann reynd­ist mér hins vegar vel – þetta voru bara sorg­ar­við­brögð. Ég gekk þarna í gegnum mesta áfallið; þetta var skóla­bók­ar­dæmi um sorg­ar­við­brögð, sem ég gekk í gegnum.“
Fimm dagar liðu þar til hún fékk sjón­ina aftur.

Þorði ekki að gráta

Vegna sjúk­dóms­ins slitn­uðu sinar í hönd­unum á Brynju frá því hún var 23 ára. Einn morg­un­inn, þegar hún var 27 ára, vakn­aði hún á spít­ala eftir aðgerð og sá allt í þoku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár