Blaðamenn dæmdir til að gefa upp heimildarmenn í morðmáli

Forstöðu­maður trúfélags kærði Ómar Valdimarsson og Atla Steinarsson. Sakadómur skipaði blaða­mönnunum að gefa upp heimildar­menn sína. Lögmaður Dagblaðsins neitaði alfarið. Hæstiréttur tók í taumana.

Uppnám
Uppnám Sann­kallað fjöl­miðla­fár varð þegar Saka­dómur dæmdi blaða­menn Dag­blaðs­ins til að ljóstra upp um heim­ildir sínar.

Veturinn 1981 varð sá hörmungar­atburður að maður brann til bana í rúmi sínu í fjölbýlis­húsi í Breið­holti. Fljótlega kom upp grunur um að honum hefði verið banað. Dagblaðið sagði þá stórfrétt í mars árið 1981, fyrir 35 árum, að eiginkona hins látna hefði játað það fyrir Einari J. Gíslasyni, forstöðu­manni Fíladelfíu­safnaðarins, að hafa borið eld að manni sínum þar sem hann var í áfengisdái í rúmi sínu. Blaðið sagði að í fram­haldinu hefði konan, sem þá var 26 ára, játað það við yfirheyrslu hjá lögreglu að eiga sök á dauða manns síns. Konan hafði að sögn búið við mikla óreglu eiginmannsins og ofbeldi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gamla fréttin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár