Bestu vinir Íslendinga

Fær­ey­ingar bera almennt mik­inn kær­leika í garð Íslend­inga. Þeir lýsa Íslend­ingum sem djörfum bræðrum og systrum, sem afreka margt en koma sér reglu­lega í vand­ræði. Stundin ræddi við níu Fær­ey­inga um hvernig þeir sjá Íslend­inga.

Mér finnst ég vera heima þegar ég er á Íslandi. Löndin líkj­ast og menn­irnir með,“ segir Brynhild Høgna­dóttir, 48 ára fram­kvæmda­stjóri Umferð­ar­ráðs, sem býr á Vel­ba­stað í Færeyjum.

Fögnuður Fær­ey­inga yfir leikjum íslenska lands­liðs­ins í knatt­spyrnu á Evr­ópu­mót­inu vakti athygli hér­lendis á sam­bandi þjóð­anna tveggja. Brynhild er ein níu Fær­ey­inga sem Stundin spurði út í tengsl almennra borg­ara í Færeyum við Ísland og sýn þeirra á Íslend­inga.

 

„Íslend­ingar eru alltaf vin­gjarn­legir við Fær­ey­inga – maður finnur fyrir skyld­leika þjóð­anna. Þegar allt kemur til alls eru Íslend­ingar mun betri í að setja orð á sínar til­finn­ingar en Fær­ey­ingar. Mitt álit er að það sé þetta sem við sjáum á knatt­spyrnu­vell­inum núna,“ segir Ingi Samu­el­sen, 54 ára blaða­maður, settur rit­stjóri á por­tal.fo og rit­ari í Norræna Félaginu í Færeyjum, sem býr í Hoyvík. Hann hefur nokkrum sinnum komið til Íslands og seg­ist álíta landið vera fal­legt og mik­il­feng­legt, „með heill­andi nátt­úru og vin­gjarn­legri þjóð“.

Saga íslensku og fær­eysku þjóð­anna er sam­ofin og ein­kenn­ist af bræðra­lagi. Þannig voru Fær­ey­ingar fyrstir til að stökkva Íslend­ingum til hjálpar eftir að dramb­semi útrás­ar­ár­anna kom í bakið á þeim í banka­hrun­inu. Meðan aðrir sneru baki við Íslend­ingum og láns­traust Íslands var í rusl­flokki til­kynntu Fær­ey­ingar um að ákveðið hefði verið með þverpóli­tískri sam­stöðu að bjóða Íslandi lán upp á þrjú hund­ruð millj­ónir danskra króna.

„Það var sér­stakt að koma til Íslands á meðan kreppan lék ykkur sem harð­ast. Það var litið á okkur Fær­ey­inga sem hetjur, það hef ég hvergi upp­lifað ann­ars staðar,“ segir Annika Sølvará, 47 ára Klakks­vík­ingur, sem býr í Þórshöfn og gegnir stöðu fram­kvæmda­stjóra Vís­inda­ráðs Færeyja og vís­inda­bóka­út­gáf­unnar Fróð­skaps.

Fær­ey­ingar, sem rætt var við fyrir Stundina, lýsa ein­stöku sam­bandi Fær­ey­inga og Íslend­inga. Þeir upp­lifa meiri gest­risni á Íslandi en ann­ars staðar, sjá Íslend­inga gjarnan sem djarfa og með ríku­legt sjálfs­mat, en stundum yfir­drifna sjálfs­trú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár