Rut brimar Hún próf­aði einu sinni og hefur ekki getað hætt síðan. Mynd: Víðir Björnsson

Að sörfa er eins og að fljúga

Rut Sig­urð­ar­dóttir ljós­mynd­ari finnur til nær ólýs­an­legrar sprengi­gleði þegar hún stendur á brim­bretti og finnur ólg­andi öld­una undir fótum sér bera sig áfram.

„Þetta er nú bara frekar beisikk! Við erum með fullt af sjó og fullt af öldum,“ svarar Rut þegar hún er spurð að því í upp­hafi sam­tals hvernig í ósköp­unum henni hafi dottið í hug að byrja að sörfa á Íslandi. Og það er auð­vitað satt. Þó að tæp­lega skap­ist hér tæki­færi til að sörfa olíu­bor­inn og ber­fættur í stutt­buxum er hér eng­inn skortur af sjó til að leika sér að. Æ fleiri eru að gera sér grein fyrir því og hópur íslenskra sör­fara fer stækk­andi. Sjálf próf­aði Rut í fyrsta skipti að sörfa í fyrra­haust og hefur ekki getað hætt síðan. „Ég hef alltaf elskað sjó­inn og verið mjög tengd honum. Kannski er það af því að ég er komin af miklum sjó­mönnum. Mér finnst eitt­hvað töfr­andi við hann. Ég var búin að vera í sjó­sundi í ár og líka búin að vera dálítið á snjó­bretti, svo mér fannst liggja beint við að prófa.“

Eins og að fá nærbuxur lánaðar hjá ókunnugum

Það var þó ekki hlaupið að því í fyrstu að finna ein­hvern til að kenna henni réttu takt­ana. „Eftir að ég var búin að bíta í mig að ég skyldi prófa þetta gerði ég dauða­leit að ein­hverjum sem gæti aðstoðað mig við að prófa. Maður þarf ákveð­inn búnað, bæði bretti og galla, og það er ekki endi­lega hlaupið að því að fá það lánað. Það eru ekki margir sem eiga bretti og gall­inn þarf að passa akkúrat á þig, svo er þetta svo­lítið eins og að spyrja ein­hvern hvort þú megir fá lán­aðar nær­bux­urnar hans, því maður er berrass­aður undir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár