Seðlabankinn: Líkur hafa aukist á að fasteignaverð lækki

Útreikningar Seðla­bankans á hlutfalli íbúða­verðs og launa­vísitölu hafa allt frá í mars gefið til kynna bólu­myndun á íbúða­markaði. Hvernig markaðurinn mun mögulega leiðrétta sig er óvíst, en hröð leið­rétting og nafnverðs­lækkanir eru möguleiki.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Sérfræðingar Seðla­bankans telja að líkur á leið­réttingu íbúða­verðs hafi aukist að undan­förnu en segja erfitt að „fullyrða nokkuð um hvort möguleg leið­rétting íbúða­verðs komi til með að verða tiltölu­lega hröð og að henni fylgi nafnverðs­lækkanir eða hvort nafnverð staðni og raunverð lækki uns nýju jafnvægi verður náð á markaðnum.“

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í umfjöllun um íbúða­markaðinn í ritinu Fjármála­stöðugleiki, sem birt var í morgun. Þar segir að verð íbúðar­húsnæðis á Íslandi mælist enn hátt á nær alla mæli­kvarða, og sömuleiðis að allt frá því í mars á þessu ári hafi útreikningar Seðla­bankans gefið til kynna að bólu­myndun væri á markaði með íbúðar­húsnæði, þegar horft væri til hlutfalls íbúða­verðs og launa­vísitölu.

Í umfjöllun Seðla­bankans segir að íbúðaverð hafi á fyrra hluta ársins hækkað umfram þá þætti sem alla jafna ráði þróun íbúðaverð til lengri tíma og að þetta bendi til „mikils ójafnvægis á markaðnum“.

„Hlutfall íbúða­verðs og launa­vísitölu hafði í lok júlí hækkað um rúmlega 16% á ársgrundvelli og hefur ekki mælst hærra frá aldamótum. Hlutfall íbúða­verðs og saman­lagðra ráðstöfunar­tekna þjóðarinnar hefur einnig farið hækkandi að undan­förnu, sérstak­lega ef litið er til ráðstöfunar­tekna að teknu tilliti til fjölda fólks á vinnu­aldri. Íbúðaverð hefur einnig hækkað langt umfram byggingar­kostnað frá seinni hluta ársins 2020,“ segir í Fjármála­stöðugleika.

Fyrstu vísbendingar um kólnun markaðarins eru nú komnar fram og staðan hefur breyst hratt.. Rakið er í Fjármála­stöðugleika að íbúðir til sölu á öllu landinu hafi verið orðnar 2.000 talsins um miðjan september, sem er tvöfaldur fjöldinn sem var til sölu á vormánuðum og að á sama tíma fari kaup­samningum um íbúðar­húsnæði fækkandi. Þá hafi meðal­sölutími íbúða einnig lengst mikið, en hann mældist 57 dagar á höfuð­borgar­svæðinu í ágúst, en fór lægst niður í 25 daga í mars. Svipuð þróun hefur átt sér stað í lands­byggðunum.

Líklegt að leiguverð fari að hækka

Á sama tíma og eignaverð hefur skotist upp í hæstu hæðir hefur ójafnvægi á milli kaup- og leigu­verðs aukist mikið, þar sem leiguverð hefur lækkað að raunvirði á undan­förnum árum.

Seðla­bankinn sér fram á breytingar á þessu, og segir að hærri fjármagns­kostnaður, aukin skamm­tímaleiga íbúða til ferða­manna, fólks­flutningar til landsins og aðrir þættir sem auki eftir­spurn eftir leigu­húsnæði muni „að líkindum setja aukinn þrýsting á hækkun leiguverð á komandi misserum“.

Nafnverðslækkanir í ríkjum þar sem þróun hefur verið áþekk

Í Fjármála­stöðugleika er farið yfir þróun mála í Noregi, Svíþjóð og Nýja-Sjálandi, þar sem húsnæðis­verð er nú þegar farið að lækka að nafnvirði og því haldið til haga að þróunin í þessum þremur löndum hafi verið áþekk og hér á landi síðustu mánuði, að því leyti að fasteigna­vextir hafi hækkað og dregið hafi úr umsvifum á fasteigna­markaði.

Í Noregi hefur vísitalan húsnæðis­verðs lækkað um 2 prósent að raunvirði, 0,1 prósent að nafnvirði, frá því í maí, en í Svíþjóð hafa lækkanir verið mun skarpari – og verðið lækkað um 14,5 prósent að raunvirði og 8,7 prósent að nafnvirði frá því í febrúar. Á Nýja-Sjálandi hefur verðið lækkað um 15 prósent að raunvirði og 12 prósent að nafnvirði frá því í nóvember í fyrra.

Hvernig yrðu íslenskar verðlækkanir?

Sem áður segir telur Seðla­bankinn erfitt að fullyrða nokkuð með hvaða hætti verð­lækkanir komi fram á Íslandi, hvort það gerist tiltölu­lega hratt með nafnverðs­lækkunum eða hvort nafnverð einfald­lega staðni og raunverð íbúða lækki.

Fyrstu nafnverðs­lækkanirnar á höfuð­borgar­svæðinu frá því árið 2019 mældust í ágúst­mánuði, en þá lækkaði sérbýli um 2,4 prósent milli mánaða, á meðan verð íbúða í fjölbýli hækkaði lítillega. Heilt yfir lækkaði vísitala íbúða­verðs á höfuð­borgar­svæðinu um 0,4 prósent á milli mánaða.

Ekki er ólíklegt að þessi þróun haldi áfram, þar sem vísitala hvers mánaðar sem Þjóðskrá birtir byggir á meðaltali þriggja mánaða. Vísitalan fyrir ágúst horfði þannig til júní, júlí og ágúst.

Ef þróunin í ágúst byrjaði að ýta vísi­tölunni niður þarf ekki að vera mjög djarfur spámaður til að ætla að þróunin á fasteigna­markaði í september­mánuði geri hið sama, enda munu áhrif síðustu vaxta­hækkana og hertra lána­skilyrða Seðla­bankans vega meira inn í útreikning vísi­tölunnar þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár