Fjögurra milljarða sjóður sem fjárfestir í íslenskri nýsköpun

Fjár­festinga­sjóðurinn Crowberry Capital hefur formlega hafið starfsemi.

Crowberry I slhf​ sjóðurinn hefur formlega verið stofnaður, og er stærð hans um fjórir milljarðar króna. Þetta kemur fram í tilkynningu en sjóðurinn var formlega stofnaður 7. júlí.

Crowberry I slhf er samlags­hlutafélag sem mun fjárfesta í ungum tækni- og þekkingar­fyrirtækjum. Crowberry mun kaupa hlutafé í einstaka fyrir­tækjum og eiga hlutinn í allt að 10 ár. Sjóðurinn mun kaupa hlutabréf í allt að 15 nýsköpunar­fyrirtækjum á næstu árum og er stærð sjóðsins 4 milljarðar við fyrstu lokum að því er kemur fram í tilkynningu.

Fjár­festar í Crowberry I slhf eru lífeyris­sjóðir (80 prósent) og einka­fjárfestar (20 prósent). Rekstrar­félagið, Crowberry Capital GP ehf​, sem er stofnað af þremur fyrrum starfs­mönnum Nýsköpunar­sjóðs atvinnu­lífsins, þeim Helgu Valfells, Heklu Arnar­dóttur og Jennýju Ruth Hrafns­dóttur, mun sjá um rekstur Crowberry I slhf. Helga, Hekla og Jenný hafa allar víðtæka reynslu í rekstri og fjár­festingum í nýsköpunar­fyrirtækjum og mun sú þekking nýtast sjóðnum vel. Starfs­menn Crowberry Capital GP munu vera virkir fjár­festar, taka sæti í stjórnum þeirra fyrir­tækja sem fjárfest er í og vinna með þeim að sækja á alþjóða­markaði.

„Við höfum unnið að undir­búningi þessa sjóðs frá því í desember 2016 og við erum þakklátar því trausti sem fjár­festar í Crowberry I slhf sína okkur. Við munum leggja okkur fram við að skila fjár­festum góðum hagnaði. Það hafa jafnframt margir úr atvinnu­lífinu hvatt okkur áfram og kunnum við þeim miklar þakkir,” segir Helga Valfells í tilkynningu.

Þær Helga, Hekla og Jenný Ruth segjast hlakka til þess að fjárfesta í íslensku hugviti. „Við hlökkum til að skapa verðmæti og taka þátt í uppbyggingu á fyrir­tækjum fram­tíðarinnar með því að fjárfesta í íslensku hugviti. Það er von okkar að Íslendingar verði ekki aðeins neytendur á tækni heldur að þau taki þátt í að skapa tækni fram­tíðarinnar,” segir Jenny Ruth Hrafns­dóttir. „Það er gefandi að taka þátt í því að búa til arðbær fyrirtæki sem byggja á tækni og þekkingu og skapa framtíðar­atvinnuvegi. Samvinna frumkvöðla og fjárfesta er mikilvæg til að árangur náist og þá getur líka ávinningurinn orðið mikill fyrir alla, ekki síst fyrir samfélagið allt,” segir Hekla.

● Crowberry Capital er 7 til 10 ára nýsköpunar­sjóður

● Sjóðurinn mun kaupa hlutabréf í allt að 15 nýsköpunar­fyrirtækjum á næstu árum ● Stærð sjóðsins er 4 milljarðar við fyrstu lokun

● Lífeyris­sjóðir og einka­fjárfestar eru bakhjarlar sjóðsins

● Mörg tækifæri í grasrót nýsköpunar

● Áhersla á tækni­fyrirtæki, t.d. matvæla­tækni, heilbrigðis­tækni, orkutækni, fjármála­tækni, tölvu­leiki og hugbúnað til fyrir­tækja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár