Hárgreiðslustofum lokað: „Við setjum bara upp nýja tísku“

„Ekki átti maður von á að upplifa þetta,“ segir Hrafnhildur Arnar­dóttir hárgreiðslu­meistari sem á og rekur hárgreiðslu­stofuna Greiðuna á Háaleitis­braut. Stofunni verður lokað á miðnætti í kvöld, eins og öllum öðrum hágreiðslu­stofum á landinu, og verða lokuð að minnsta kosti fram yfir páska vegna herts samkomu­banns til að stemma stigu við útbreiðslu COVID-19 veirunnar.

„Það er mjög sérstakt. Ekki átti maður von á að upplifa þetta,“ segir Hrafnhildur Arnar­dóttir hárgreiðslu­meistari. Hún hefur átt og rekið hárgreiðslu­stofuna Greiðuna á Háaleitis­braut undan­farin 13 ár, en stofan var stofnuð fyrir meira 60 árum og þar starfa 5-6 að jafnaði. Dyrum hennar verður lokað á miðnætti í kvöld og verða lokaðar að minnsta kosti fram yfir páska vegna herts samkomu­banns til að stemma stigu við útbreiðslu COVID-19 veirunnar.

„Þetta er auðvitað pínu sjokk. Ég er með nokkra í vinnu og maður þarf að spá í hvað maður gerir,“ segir Hrafnhildur.

Í gær var tilkynnt um hertar takmarkanir á samkomum og í því felst meðal annars að starfsemi og þjónustu sem krefst mikillar nálægðar við viðskipta­vini verður lokað frá og með miðnætti í kvöld. Til slíkrar þjónustu teljast meðal annars hárgreiðslu­stofur.

Heyrði fyrst þessari ákvörðun í fréttum

Hrafnhildur segist hafa heyrt af þessari ákvörðun í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár