Merkel segist reiðubúin að skoða skuldamál Grikkja

Angela Merkel Þýska­lands­kanslari segist reiðubúin að skoða frekari skulda­breytingar fyrir Grikkja þegar búið er að greiða úr þeim breytingum á efnahags­málum sínum sem nú er unnið að. Þetta kom fram í sjónvarps­viðtali í ARD TV í Þýska­landi í dag.

Merkel sagðist vera opin fyrir því að ræða að lækka vexti á lánum og sömuleiðis að lengja í lánum. Svona lagað muni þó aðeins koma til greina eftir að búið er að semja um smáatriðin í nýjasta neyðarlána­samkomu­laginu milli evru­ríkjanna og Grikk­lands. Skuldir verði hins vegar ekki felldar niður. Það sé ekki hægt í mynt­samstarfi eins og evru­samstarfið er. „Grikkir hafa nú þegar fengið afskriftir. Lánardrottnar í einka­geiranum tóku á sig niður­fellingu skulda og við höfum nú þegar lengt í lánunum einu sinni og lækkað vexti,“ sagði Merkel.

„Við getum talað um slíka möguleika aftur nú, en aðeins þegar búið er að fara í gegnum fyrstu skoðun á samkomu­laginu sem nú verður samið um. Þá verður þessi spurning rædd - ekki núna, heldur þá.“

Viðtalið við Merkel verður sýnt í fullri lengd í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár