Kínverjar hvattir til að yfirgefa Norður-Kóreu

Spennan magnast á Kóreu­skaga.

Frá hersýningu í Norður-Kóreu í síðasta mánuði.
Frá her­sýn­ingu í Norður-Kóreu í síð­asta mán­uði. Mynd: EPA

Kín­versk stjórn­völd eru sögð hafa hvatt þá Kín­verja sem bú­sett­ir eru í Norður-Kór­eu til að snúa aft­ur heim til Kína, vegna ótta um að upp úr sjóði í deil­um Banda­ríkj­anna og Norður-Kór­eu.

Þetta kemur fram á vef Independent, og er vitnað til umfjöllunar í Times í Suður-Kóreu. Það er sendiráð Kína í Norður-Kóreu sem á að hafa látið þessi boð út ganga til Kínverja í landinu.

Í Norður-Kóreu búa 25 milljónir manna. Í Suður-Kóreu eru íbúar um tvöfalt fleiri, eða ríflega 50 milljónir.

Samkvæmt umfjöllun New York Times hefur Bandaríkjaher nú sett upp fullkomið loftskeyta­varnarkerfi á landa­mærum ríkjanna og sjóherinn er tilbúinn til að grípa til aðgerða á hafi úti, hvenær sem er.

Stjórn­völd í Norður-Kóreu hafa hvergi dregið úr yfir­lýsingum sínum og segjast tilbúin í stríð hvenær sem er. Þá hefur tilraunum þeirra með flug­skeyti fjölgað að undan­förnu, en þrjú síðustu skot hafa misheppnast.

Donald J. Trump, Bandaríkja­forseti, hefur sagt að Bandríkin muni gera það sem þurfi til að tryggja öryggi. Ef Bandaríkja­herinn þurfi að taka málin í sínar hendur einn þá muni hann gera það. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár