Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag, í dag eins og svo marga aðra daga.


  1. Kínversk stjórn­völd hafa hætt áætlunum sínum um stórfelld kaup á hluta­bréfum. Áætlanirnar virkuðu ekki.

  2. Það er frídagur í Bretlandi. Fjármála­markaðir eru lokaðir, og dagurinn í dag markar lok sumarsins.

  3. Tölur um hagvöxt í Indlandi verða kynntar í dag, en búist er við því að hann mælist 7,5%.

  4. Ítalska orku­fyrirtækið Eni hefur fundið mikla jarð­gaslind undan ströndum Egypta­lands. Fyrir­tækið segir að þetta sé stærsti fundurinn í Egypta­landi og í Miðjarðar­hafinu, og gæti verið einn stærsti jarðgas­fundur í heiminum.

  5. Rolls Royce hefur staðfest að fyrirtæki hafi átt samvinnu við yfirvöld vegna spillingar­rannsóknar í Brasilíu. Fyrir­tækið hafði áður sagt að ekki hefði verið haft samband vegna tengsla fyrir­tækisins við mann sem er sagður hafa mútað embættis­mönnum fyrir hönd verktaka Petrobras. Rolls Royce er til rann­sóknar í Bretlandi vegna ásakana um mútu­greiðslur í Asíu.

  6. Miðar á viðureign Serenu Williams á opna bandaríska meistara­mótinu í tennis eru uppseldir, og það áður en seldist upp á úrslita­viðureignina í karla­flokki. Þetta hefur aldrei gerst áður. Williams ætlar að reyna að vinna ástralska, franska og bandaríska meistara­mótið sem og Wimbledon, allt á einu keppnis­tímabili.

  7. Maðurinn sem var á laugar­daginn hand­tekinn í tengslum við sprengju­árás í Bangkok hefur enn ekki sagt orð við lögregluna.

  8. Apple mun hækka verðið á nýrri útgáfu á Apple TV þegar hún kemur út í október, og verðið gæti farið upp í 200 dollara úr 69.

  9. Google ætlar að hætta með auglýsingar sem nota Flash, frá og með morgun­deginum.

  10. Wes Craven, hryllings­mynda­leik­stjórinn sem stýrði Nightmare on Elm Street og Scream, er látinn. Hann var 76 ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár