Ný heimildarmynd eftir Michael Moore frumsýnd í haust

Ný heimildar­mynd bandaríska leik­stjórans Michael Moore verður frumsýnd á Alþjóð­legu kvikmynda­hátíðinni í Toronto, TIFF, í september næst­komandi. Myndin heitir „Where to Invade Next“ eða „Næsta innrás“ í lauslegri þýðingu. Samkvæmt frétt The Guardian fjallar heimildar­myndin um það hvernig bandarísk stjórn­völd eru sífellt í stríðs­rekstri.

Where to Invide Next verður fyrsta myndin frá Moore í sex ár en hann hefur leikstýrt fjölda mynda. Hann fékk Óskars­verðlaun fyrir heimildar­myndina Bowling for Columbine árið 2002, gerði Fahrenheit 9/11 árið 2004 um stríð George Bush, fyrrum Bandaríkja­forseta, gegn hryðju­verkum, og fjallaði um brota­lamir í bandarísku heilbrigðis­kerfi í myndinni Sicko frá árinu 2007. Fahrenheit 9/11 er tekju­hæsta heimildar­mynd allra tíma.

Moore greindi frá umfjöllunar­efni nýju myndarinnar í gegnum útsendingar-forritið Periscope í gær. Hægt er að horfa á sex mínútna langa upptökuna hér að neðan, þar sem Moore svarar meðal annars spurningum sem honum bárust á Twitter. Moore byrjaði á því að heilsa „vinum mínum hjá NSA [Bandaríska þjóðar­öryggis­stofnunin] sem eru að horfa“ en Moore, sem er afar pólitískur, hefur verið mjög gagnrýnin á starfsemi eftirlits­stofnunarinnar.

Að sögn Moore var myndin tekin upp í þremur heims­álfum og hafa tökur farið fram leynilega síðustu sex ár. „Það að Banda­ríkin séu í stöðugum stríðs­rekstri hefur valdið mér nokkrum áhyggjum um nokkra hríð og veitir nauðsyn­lega háðsdeilu fyrir þessa mynd. Það er þessi stans­lausa þörf að eiga óvin, hvar er næsti óvinur þannig að við getum haldið heriðnaðinum gangnandi, og haldið fyrir­tækjunum sem græða helling af peningum lifandi. Þetta hefur alltaf truflað mig og þaðan kemur gaman­myndin,“ sagði Moore. Blaðamenn The Guardian meta það svo að orðalagið bendi til að tónninn í heimildar­myndinni verði kaldhæðinn og gamansamur, eins og áður hefur sést í heimildar­myndum Moore.


Here's the 6-min video from the Periscope I just did regarding my new film, WHERE TO INVADE NEXT. #W2IN #TIFF15 https://t.co/lKhLhTPUpn


— Michael Moore (@MMFlint) July 28, 2015

Var á Íslandi í maí

Það vakti nokkra athygli þegar Michael Moore var staddur á Íslandi í maí síðastliðnum. Hann hitti meðal annars Jón Gnarr og Birgittu Jóns­dóttur, þingmann Pírata. Fátt bendir til að heimsókn hans þá, sem sögð var í fjöl­miðlum vera í tengslum við nýja heimildar­mynd, hafi tengst heimildar­myndinni sem frumsýnd verður í Toronto næsta haust.

Michael Moore er hress í Leifsstöð. "Welcome to Iceland" sagði hann pic.twitter.com/PElYINavJ9 — Helgi Kristinn (@HelgiKris) May 8, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár