Gríska þingið kýs á ný um umbætur í kvöld - neyðarlánaviðræður hefjast strax í kjölfarið

Gríska þingið mun kjósa á ný um umbætur tengdar við neyðarlána­veitingar frá lánardrottnum þeirra í kvöld. Þetta er í annað skiptið á einni viku sem greidd eru atkvæði um mál tengd samkomu­laginu sem náðist við evruríkin fyrr í mánuðinum. Þetta er síðasta hindrunin í vegi fyrir því að hefja viðræður um áfram­haldandi neyðarlán.

Talið er líklegt að Alexis Tsipras forsætis­ráðherra komi seinni skammti tillagnanna í gegnum þingið í kvöld, en umræður um málin fara fram í dag. Atkvæða­greiðslan í kvöld verður mikilvæg fyrir Tsipras, sem hefur rekið úr ríkis­stjórn sinni þá ráðherra sem greiddu atkvæði gegn honum fyrir viku síðan. Tæplega fjörutíu þingmenn Syriza, flokka­banda­lagsins sem Tsipras fer fyrir, greiddu atkvæði gegn umbótunum þá, en Guardian greinir frá því að stjórn­völd vonist til þess að sex þeirra hafi nú skipt um skoðun.

Breytingarnar sem stjórn­völd vonast til að verði samþykktar í kvöld fjalla meðal annars um umbætur á dóms­kerfinu, sem eiga að gera það hrað­virkara og ódýrara, og umbætur á banka­reglugerðum. Banka­reglugerð ESB sem á að tryggja að lánardrottnar og hluthafar beri kostnaðinn af falli banka frekar en skatt­greiðendur var samþykkt eftir kreppu en Grikkland var eitt 12 Evrópu­sambands­ríkja sem kom reglu­gerðinni ekki inn í landslög fyrir tilsettan frest.

Ef gríska þingið samþykkir þessar breytingar í kvöld munu fulltrúar frá framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins, Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum og Seðla­banka Evrópu mæta til Aþenu strax á föstudag til að hefja viðræður um neyðarlán.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár