Þrjú sýrlensk börn sem flutt voru á sjúkrahús í Austurríki í fyrradag eru horfin þaðan ásamt fjölskyldum sínum. Börnin voru í hópi 26 flóttamanna sem fundust í bifreið sem stöðvuð var skammt frá landamærum Þýskalands og voru þau þá illa haldin af vatnsskorti og nær meðvitundarlaus vegna veikinda. Samkvæmt frásögn breska ríkisútvarpsins
BBC
er ekkert vitað hvað varð um fólkið en einn möguleikinn er talinn vera sá, að fólkið hafi óttast að vera sent aftur í flóttamannabúðir, meðal annars í Ungverjalandi þaðan sem það kom.
Börnin voru flutt á sjúkrahús í bænum Braunau am Inn, en í gær virðast fjölskyldur þeirra hafa laumast burt með þau.
Í dag, í öðru máli þar sem fólk fannst í vöruflutningbifreið í Austurríki, var fimmti maðurinn handtekinn og leiddur fyrir dómara. Mennirnir eru grunaðir um aðild að ólöglegum flutningum á flóttafólki, en í síðustu viku fannst 71 lík inn bifreiðinni. Málið er í rannsókn en mennirnir sem í haldi eru hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 29. september. Grunur leikur á því að þeir séu lágt settir menn í skipulagðri glæpastarfsemi sem einblínir á fólksflutninga.
Austria and Hungary hope arrests will lead to human trafficking ringleaders http://t.co/vIwT6t4L5A pic.twitter.com/L7Rt1dzs71
— euronews (@euronews) August 30, 2015
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir