Markaðir að senda merki um að seðlabankinn eigi að bíða með vaxtahækkun

Fjár­festar á markaði í Banda­ríkjunum eru að senda Seðla­banka Banda­ríkjanna merki um að hann eigi að bíða með að hækka stýri­vexti, eftir nærri sjö ára tímabil þar sem þeir hafa verið við núllið. Þetta kemur fram í umfjöllun Wall Street Journal, en nokkur skjálfti á hluta­bréfa-, skulda­bréfa- og hrávöru­mörkuðum að undan­förnu hefur beint spjótum að yfir­lýsingum Janet Yellen, seðla­banastjóra Banda­ríkjanna, um að tíminn til að hækka vexti gæti verið á næstu misserum.

Ástæðan fyrir því að ákvörðun seðla­bankans um hækkun, eða ekki hækkun, vaxta er beðið með óþreygju er sú að hún þykir vera heilbrigðistvottorð um að nú sé hagkerfi Banda­ríkjanna búið að ná formlegum bata eftir niður­sveifluna í kjölfar fjármála­kreppunnar fyrir sjö árum. Hagtölur í Banda­ríkjunum hafa verið góðar að undan­förnu, en atvinnu­leysi er nú komið niður í fimm prósent, sem er sambærilegt við það sem var áður en fjármála­kreppan skall á.

Þrátt fyrir það hefur Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn varað því að hefja hækkunar­ferli á vöxtum, þar sem heims­búskapurinn sé að ganga í gegnum óvissu­tímabil og niður­sveiflu á ýmsum mörkuðum, einkum þeim sem eru nátengdir þróun olíuverðs. Það hefur farið lækkandi að undan­förnu, og er ekki útlit fyrir að það hækki mikið á næstu misserum.


For the Fed, markets may be flashing a wait sign: http://t.co/cWBTsCKgxS by @greg_ip


— Wall Street Journal (@WSJ) September 15, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár