Hafa ekki sektað neina ökumenn fyrir að taka ólöglega fram úr hjólreiðafólki

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hefur aldrei sektað ökumann fyrir að taka fram úr hjólreiða­manni án þess að 1,5 metra bil sé á milli bíls og hjóls. Samtök hjólreiða­fólks hafa gagnrýnt lögreglu fyrir að taka ekki á móti myndefni sem sanni slík brot.

Skjáskot úr myndbandi frá Birgi Birgissyni sem sýnir afar glæfralegan (og ólöglegan) framúrakstur bifreiðar um síðustu jól.
Skjáskot úr mynd­bandi frá Birgi Birg­is­syni sem sýnir afar glæfra­legan (og ólög­legan) fram­úr­akstur bif­reiðar um síð­ustu jól. Mynd: Skjáskot af YouTube

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hefur enn sem komið er ekki gefið út eina einustu sekt til ökumanna sem gerast sekir um að taka fram úr hjólreiða­manni án þess að lögbundið bil, eða 1,5 metrar, séu á milli bíls og hjólreiða­manns. Þetta kemur fram í svari lögreglu við fyrir­spurn Kjarnans.

Í upphafi árs 2020 tóku gildi breytingar á umferðar­lögum, sem meðal annars gerðu það refsivert að aka fram úr einstaklingi á hjóli án þess að 1,5 metrar væru á milli bíls og reiðhjóls eða létts bifhjóls. Við þessu broti á umferðar­lögum liggur 20 þúsund króna sekt.

Forsvars­menn tveggja grasrótar­samtaka hjólreiða­manna, Birgir Birgisson formaður Reiðhjóla­bænda og Árni Davíðsson formaður Lands­samtaka hjólreiða­manna birtu opið bréf til lögreglu­stjórans á höfuð­borgar­svæðinu á Vísi á miðvikudag þar sem þeir gagnrýndu auk annars að ekkert virtist vera gert af hálfu lögreglu til að fram­fylgja þessari nýju lagagrein, hvað þá bregðast við þegar brot á henni væru kærð.

Í bréfi Árna og Birgis segir að ákvæði þessarar laga­greinar séu brotin á hverjum degi, oftast í mesta þétt­býlinu þar sem ólíkar tegundir vegfarenda nýta sama rýmið til að komast leiðar sinnar.

„En það gerist þó líka furðulega oft úti á þjóðvegum landsins þar sem þó er rýmra um hvern vegfaranda. Allt of oft skapast mikil hætta fyrir hjólandi fólk því ökumenn virðast almennt ekki gera sér mikla grein fyrir þeirri hættu sem þeir setja hjólreiða­fólk í þegar brotin eru framin og virðast oftar en ekki miða aksturinn meira við það að rispa ekki bílana sína en að hlífa lífi og heilsu hjólreiða­fólks,“ skrifa þeir Birgir og Árni.

Lögregla neiti að taka á móti sönnunargögnum

Birgir hefur á YouTube-síðu sinni birt allnokkur myndbönd af glæfra­legum fram­úrakstri bíla í umferðinni, sem hann hefur sjálfur tekið upp með myndavél sem hann festir á reiðhjól sitt. Eitt þeirra má sjá hér að neðan, en þar nánast strýkst bíll

Í bréfi þeirra Birgis og Árna kom fram að hjólreiða­fólk hefði margoft kært mál af þessu tagi, og að í mörgum tilfellum hefðu lögreglu verið boðnar myndbands­upptökur af atvikunum til stað­festingar á kæru­efninu.

„Móttöku á slíku efni er oftar en ekki hafnað á mjög undarlegum forsendum. Iðulega er vísað í einhver óskilgreind dóma­fordæmi og hversu ólíklegt sé að efnið dugi til að sanna sök ökumanns,“ segir í bréfi Birgis og Árna.

Í bréfinu beindu þeir Birgir og Árni nokkrum spurningum til lögreglu­stjórans á höfuð­borgar­svæðinu, meðal annars þeirri hversu oft lögregla hefði sektað ökumenn fyrir brot á 1,5 metra reglunni.

Blaða­manni lék sömuleiðis forvitni á að fá svar við því og beindi fyrir­spurn um málið til lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu.

Svarið er, sem áður segir, aldrei.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár