„Ótrúlegt“ uppgjör Apple veldur verðfalli hlutabréfa

Hlutabréfa­verð í bandaríska tækni­fyrirtækinu Apple hefur lækkað duglega í viðskiptum kaup­höllinni í New York í dag. Verð hluta­bréfa félagsins lækkuðu um 5 prósent við upphaf viðskipta. Verð­fallið kemur í kjölfar árshluta­uppgjörs sem kynnt var í gær af Tim Cook, forstjóra félagsins. Þrátt fyrir að tekjur og hagnaður félagsins hafi aukist verulega þá hafa fjár­festar tekið uppgjörinu illa.

Uppgjörið náði yfir þriðja ársfjórðung rekstrarárs Apple, það eru mánuðirnir þrír fram til 27. júní síðastliðinn. Í saman­burði við sama tímabil í fyrra þá jókst hagnaður um 38 prósent og tekjur um 33 prósent. Alls nam hagnaðurinn 10,7 milljörðum dollara. Samtals seldust 47,5 milljónir eintaka af iPhone snjall­símum, eða 35 prósent meira á sama tíma í fyrra. Sala á Mac tölvum jókst um 9 prósent milli tíma­bilanna. Tim Cook, forstjóri Apple, sagði ársfjórðunginn sem leið hafa verið „ótrúlegan“.


Því virðast fjár­festar ósammála. Ástæður fyrir dræmum viðbrögðum og lækkandi hlutabréfa­verði eru einkum taldar tvær. í fyrsta lagi bjuggust greiningar­aðilar og fjár­festar við enn meiri vexti. Í öðru lagi er nú spurt hvort Apple geti viðhaldið þeim mikla vexti sem hefur einkennt félagið, en vöxturinn hefur á síðustu árum hefur verið drifinn áfram af auknu vöru­úrvali og nýjum uppfærslum á eldri vörum.

Símarnir helsta tekjulindin - Engar upplýsingar um úrið

Í umfjöllun BBC um uppgjörið er greint frá áhyggjum sérfræðinga um að vöxtur sé of háður sölu iPhone snjall­síma og jafnframt er því velt upp hvort sölu­vöxtur símans geti haldið áfram á sama hraða og til þessa. iPhone er stærsti einstaki tekju­póstur Apple en sala á iPad hefur dregist saman að undan­förnu og var 11 prósentum lægri en í fyrra. Á uppgjörs­fundi reyndi Cook að slá á þessar áhyggjur og upplýsti að 73 prósent þeirra sem eiga iPhone 5s eða eldri gerð hafi enn ekki uppfært og fengið sér iPhone 6 síma. Því eigi iPhone 6 „mikið inni“.


Þá eru ekki allir á eitt sáttir um þá ákvörðun Apple að upplýsa ekki um sölu Apple úrsins, nýjustu vöru félagsins og þá fyrstu sem flokka má með tísku­vörum. Apple segir það mikilvægt svo keppinautar fái ekki mikil­vægar upplýsingar. Tekjur af sölu úrsins eru þess í stað flokkaðar undir „aðrar tekjur“ með auka­hlutum og Beats-heyrna­tólum. Vefmiðillinn Vox fjallar um þessa stefnu félagsins og segir afar erfitt að meta hverjar viðtökur við Apple úrinu hafi raun­verulega verið, þar sem þau séu seld á svo stóru verðbili, allt frá 350 dollurum til 15 þúsund dollara. Blaðamenn Bloomberg áætla að um 1,9 milljónir úra hafi verið seld frá því þau komu á markað, en „aðrar tekjur“ jukust um 950 milljónir dollara á síðasta ársfjórðungi saman­borið við fyrsta ársfjórðung rekstrar­ársins.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár