Seðlabanki Evrópu heldur grískum efnahag á lífi með neyðarlánum

Seðla­banki Evrópu samþykkti í gær að leggja Grikkjum til fé til þess að halda fjárhag banka­kerfis landsins réttu megin við núllið, og halda um leið lífi í efnahags­kerfi landsins, sem rambar nú á barmi hruns. Valdis Dombrovskis, vara­forseti Evrópu­ráðsins, sagði í samtali við fjölmiðla í gær, að neyðarlán hefði verið veitt vegna áhlaups á gríska banka, en bæði almenningur í Grikk­landi og fyrirtæki sömuleiðis hafa á undan­förnum vikum tekið út úr þeim milljarða evra.

Ekki hefur verið gefið upp nákvæmlega hversu miklir fjármunir hafa farið úr bönkunum, en talið er að um þrír milljarðar evra hafi farið úr bönkunum í síðustu viku, samkvæmt fréttum New York Times.

Grísk stjórn­völd reyna nú allt til þess ná samningum við lána­drottna sína áður en skuldir ríkis­sjóðs Grikk­lands gjald­falla, en hinn 30. júní næst­komandi eru 1,6 milljarðar evra á gjalddaga og samtals eru 7,2 milljarðar evra á gjalddaga í sumar, sem fyrirséð er að stjórn­völd verða að ná samkomu­lagi um.

Evrópu­sambandið og Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn hafa lagt á það áherslu að Grikkir standi við skuld­bindingar sínar í samræmi við fjár­mögnunar­áætlun upp á samtals 240 milljarða evra, sem gengið frá frá árið 2012. Í henni fólust meðal annars miklar hagræðingar­aðgerðir í Grikk­landi, og þar með talið uppsagnir á þúsundum opinberra starfs­manna.

Stjórn­völd, með Alexis Tsipras forsætis­ráðherra í broddi fylkingar, hafa ekki viljað fara út í hagræðingar­aðgerðirnar og vilja endur­skoða áætlunina sem unnið hefur verið eftir í þrjú ár. Ekkert hefur hins vegar gengið í samninga­viðræðunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár