Donald Trump og Ted Cruz mótmæla Íranssamkomulagi fyrir utan þinghúsið

Donald Trump og Ted Cruz, sem báðir vilja hljóta útnefningu Repúblikana­flokksins sem forseta­fram­bjóðandi, eru báðir staddir á mótmæla­fundi gegn Írans­samkomu­laginu svokallaða. Þrátt fyrir að vera keppinautar um útnefninguna eru þeir sameinaðir í mótmælum sínum gegn samkomu­laginu. Þeir munu báðir tala á mótmæla­fundinum, sem fer fram fyrir framan þinghúsið í Washington.

https://youtu.be/FOCd-5OxCEI

Barack Obama Bandaríkja­forseti er þó búinn að tryggja nægan fjölda atkvæða í þinginu til þess að samkomu­lagið nái fram að ganga. Fjöldi þingmanna er orðinn nægilega mikill til þess að forsetinn þurfi ekki að beita neitunar­valdi sínu.

Samninga­viðræðurnar milli Banda­ríkjanna, Bretlands, Frakk­lands, Kína, Rússlands og Þýska­lands annars vegar og Írans hins vegar hófust árið 2006. Þær snérust um kjarnorku­áætlun Írans, og þeim lauk með samkomu­lagi í júlí síðastliðnum. Kjarnorku­eftirlits­menn frá Sameinuðu þjóðunum munu fá víðtækan aðgang að Íran samkvæmt samkomu­laginu og í staðinn verður einhverjum alþjóð­legum viðskipta­þvingunum gegn landinu aflétt. Samningurinn kveður á um að Íranar hægi á kjarnorku­áætlun sinni, dragi úr auðgun úrans og lofi að smíða ekki kjarnorku­sprengjur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár