Bolt bjargaði frjálsum íþróttum...aftur - Var svo keyrður niður!

Jamíkubúinn Usain Bolt sigraði nokkuð örugglega í 200 metra hlaupi á HM í Peking í dag, og þurfti hans helsti keppinautur í sprett­hlaupum, Bandaríkja­maðurinn Justin Gatlin, að sætta sig við annað sætið. Bolt, sem hljóp á tímanum 19.55 sekúndur, sigraði einnig í 100 metra hlaupinu.

Á vef breska ríkis­útvarpsins BBC segja sérfræðingar sem rætt er við að með sigrinum hafi Bolt aftur bjargað andliti frjálsra íþrótta sem glíma við mikinn ímyndar­vanda vegna lyfja­misnotkunar íþrótta­manna, en Gatlin hefur í tvígang fallið á lyfja­prófi á ferli sínum, en er samt að keppa í fremstu röð.

Gatlin féll fyrst á lyfja­prófi 2001 og fékk þá tveggja ára keppnis­bann, sem var svo stytt í eitt ár. Árið 2005 féll Gatlin aftur á lyfja­prófi þegar sterar mældust í alltof miklu mæli í honum. Hann hafði þá unnið 100 og 200 hlaup á HM í Helsinki í Finnlandi. Hann fékk þá fjögurra ára keppnis­bann. Eftir að því lauk hóf hann keppni á nýjan leik, og er nú kominn í fremstu röð aftur.

Kínverskur mynda­tökumaður stal senunni á HM í Peking þegar hann klessti á Bolt á ökutæki sínu, skömmu eftir sigurinn í 200 metra hlaupinu, með þeim afleiðingum að þeir duttu báðir til jarðar. Bolto sagði eftir hlaupið að hann hafi ekki vitað hvað væri í gangi. „Hann reyndi að drepa mig“ sagði Bolt og brosti.


Cameranan rolling on Bolt #usainbolt #beijing2015 #number1 #cameraman (Vine by @VDWinParis) https://t.co/TYzLs3pEwF


— J.Wän (@jwanj) August 27, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár