Stofnendur Google högnuðust um þúsund milljarða á föstudaginn

Stofn­endur Google, hinir moldríku Larry Page og Sergey Brin, högnuðust um fjóra milljarða Bandaríkja­dala hvor á einum degi í síðustu viku, þegar verð á hluta­bréfum tækni­risans hækkuðu á hlutabréfa­mörkuðum. Frétta­miðlarnir TIME, Fortune og Bloomberg greina frá málinu.

Verð á hluta­bréfum í Google hækkuðu bratt eða um hátt í 16 prósent í síðustu viku þegar rekstrar­niðurstöður fyrir­tækisins á öðrum ársfjórðungi voru kynntar, sem voru um margt jákvæðari en flestir gerðu ráð fyrir. Þá tilkynnti fyrir­tækið samhliða um aukið aðhald í rekstri.

Hlutabréfa­verð í Google lokaði í rúmum 672 Bandaríkja­dölum fyrir hlut á föstu­daginn, og hafði þá hækkað á einum degi um 93 dali, sem hækkaði verðmæti hluta­bréfa í eigu stofnenda Google um átta milljarða bandaríkja­dali, eða tæplega 1.090 milljarða íslenskra króna.

Söguleg aukning auðs


Um er að ræða mestu aukn­ingu auðs á einum degi í sögu Banda­ríkj­anna, en verð­mæti Google hækk­aði um 51 millj­arð Banda­ríkja­dala sama dag­inn í síð­ustu viku.

Auðæfi þeirra Page og Brin hafa hækkað um 24 prósent á yfir­standandi ári, eða um sjö milljarða Bandaríkja­dali hjá hvorum stofnanda Google. Þá hefur auður stjórnar­formannsins Eric Schmidt, sem á 1,3 prósenta hlut í Google, hækkað um 22 prósent á árinu.

Skörp hækkun hluta­bréfa í Google á föstu­daginn skilaði fyrir­tækinu í annað sætið yfir stærstu fyrirtæki heims, þar sem bandaríski tækni­risinn Apple trónir á toppnum. Þá má til gamans geta að Apple fyrir­tækið er metið á um 746 milljarða Bandaríkja­dali, eða um 101.456.000.000.000 íslenskar krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár