SFS finnst veiðigjöldin ekki lækka nógu mikið

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi vilja að veiði­gjöld lækki enn meira en lagt er til í frum­varpi atvinnu­vega­nefndar, þar sem lagt er til að þau lækki um 1,7 millj­arða. Samtökin eru líka á móti sér­tækum afsláttum sem gagn­ast minni útgerðum.

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SGS) segja að frum­varp sem lækkar veiði­gjöld á útgerðir um 1,7 millj­arð króna í ár sé „skref í rétta átt“. Samtökin telja hins vegar að frekar eigi að miða við veiði­gjöldin við þá nið­ur­stöðu sem sett var fram í skýrslu sem Deloitte vann fyrir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neytið og spálíkan veiði­gjalds­nefndar skil­aði af sér. Þau eru einnig mót­fallin því að sér­tækir afslættir á veiði­gjöldum séu veittir minni útgerðum, líkt og lagt er til í frum­varp­inu. Þetta kemur fram í umsögn SFS, sem skilað var inn í gær, um frum­varp meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar um lækkun veiði­gjalda sem lagt var fram á mið­viku­dag.

Ef veiði­gjaldið yrði end­ur­reiknað á grund­velli þess myndi það fara úr tíu millj­örðum króna í ár í 7,2 millj­arða króna, og þar með lækka um 2,8 millj­arða króna. Í ljósi þess að um yrði að ræða krónu­tölu­lækk­anir á gjaldi sem lagt er á hverja teg­und fisks sem er veidd myndi uppi­staðan af lækkun veiði­gjalda lenda hjá stærstu útgerðum lands­ins.

Skref í rétta átt en ekki nóg

Í umsögn SFS segir að með frum­varp­inu sé að hluta til brugð­ist við einni for­sendu sem sam­tökin telja ranga í reikni­grunni veiði­gjalds, þ.e. að tekið sé mið af afkomu grein­ar­innar fyrir tveimur til þremur árum. „Flestir sem hafa tjáð sig um gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi, hvar sem í stjórn­mála­flokkum þeir standa, hafa tekið undir þennan ágalla. Áhrif hans eru sér­stak­lega slæm þessi miss­eri, þegar rekstr­ar­skil­yrði í sjáv­ar­út­vegi eru erfið og allt önnur en þau voru árið 2015. Að því leyti telja SFS að frum­varpið feli í sér skref í rétta átt. Ef ætl­unin er hins vegar að færa gjöldin nær í tíma, þá fylgir frum­varpið ekki þeirri reglu heldur gengur skemur.“

SFS segir rekstr­ar­nið­ur­stöður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja liggja fyrir í skýrslu Deloitte og sam­kvæmt lík­ani veiði­gjalds­nefndar. „Er því vel unnt að miða gjald­töku við þær nið­ur­stöður. Það er hins vegar ekki gert nema að tak­mörk­uðu leyti og telja SFS það gagn­rýn­is­vert. Þá ætti einnig að leið­rétta aðrar for­sendur, sem telja má rangar í aðferð­ar­fræði við ákvörðun veiði­gjalds og leiða til þess að gjaldið er ofreiknað.“

Á móti afslætti fyrir minni útgerðir

Í umsögn­inni kemur einnig fram að SFS sé almennt mót­fallin hvers kyns sér­tækum afsláttum eða íviln­unum. Samtökin telja slíka ekki sam­ræm­ast þeirri meg­in­reglu að gjald fyrir nýt­ingu auð­lindar skuli vera það sama óháð því hver nýtir. Rýmkun svo­kall­aðs per­sónu­af­sláttar, sem nýt­ist minni útgerðum, á að lækka álögð veiði­gjöld eftir lækkun úr 8,6 millj­örðum króna í 8,3 millj­arða króna, eða um 300 millj­ónir króna.

SFS hefur óskað eftir því að eiga fund með atvinnu­vega­nefnd til þess að fara munn­lega yfir athuga­semdir sínar.

Frumvarp atvinnu­vega­nefndar kom fram á mið­viku­dag þegar örfáir dagar voru eftir af starfs­á­ætlun þings­ins. Mikil and­staða hefur verið við frum­varpið og vinnu­lagið í kringum það hjá stærstum hluta stjórn­ar­and­stöð­unnar og því hefur ekki tek­ist að fá sam­þykki fyrir flýti­með­ferð þess á þingi. Búist er við því að umræður um málið haldi áfram á þriðju­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár