Telur kröfur til aðila með einfaldan rekstur óhóflegar og eftirlit of mikið

Diljá Mist Ein­ars­dóttir hvetur kollega sína á þing­inu til að treysta fólki betur – treysta því til að ráða sér sjálft og bera ábyrgð á sér sjálft. Hún gagn­rýnir í þessu ljósi frum­varp heil­brigð­is­ráð­herra um að fella nikótín­vörur undir lög um rafrettur.

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Diljá Mist Ein­ars­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Diljá Mist Ein­ars­dóttir, hvetur sam­starfs­fólk sitt á Alþingi að ein­falda reglur „í stað þess að bæta í“ og að passa sig á því að kaf­færa ekki litla rekstr­ar­að­ila í óhóf­legum kröfum og eft­ir­liti.

Þetta kom fram í máli þing­manns­ins undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Byrjaði hún á því að nefna frum­varp Willums Þórs Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra um að fella nikótín­vörur, og þar með nikótín­púða, undir lög um rafrettur en umræður um frum­varpið fóru fram á Alþingi í gær.

Allir eiga að vera „bæði með belti og axlabönd“

Diljá Mist sagði að með frum­varp­inu væri reynt að hafa vit fyrir full­orðnu fólki, meðal ann­ars með reglum um hvers konar bragð­efni það gæti valið og hvar það mætti stinga púða undir vör­ina.

„Við Íslend­ingar megum ekki kaupa vín á kvöldin, á sunnu­dögum og alls ekki í net­verslun, nema auð­vitað að það sé erlend net­verslun. Við erum með rík­is­út­varp og við erum með rík­is­styrktan póst. Reglu­verkið okkar og rekstr­ar­um­hverfi fyr­ir­tækja í land­inu er að mörgu leyti allt of flókið. Eft­ir­litið er mikið og kröfur til aðila með afmark­aðan og ein­faldan rekstur óhóf­legar.

Vald­hafar hafa ríka til­hneig­ingu til að vilja stýra sem mestu, skipta sér sem mest af fólki, hafa vit fyrir því, setja reglur, gera meiri kröfur í stað þess að létta á. Allir eiga að vera bæði með belti og axla­bönd, bæði bók­staf­lega og ekki,“ sagði hún.

Í lokin hvatti hún, eins og áður segir, kollega sína til að treysta fólki betur, treysta því til að ráða sér sjálft og bera ábyrgð á sér sjálft – auð­vitað svo lengi sem fólk gengi ekki á rétt ann­arra. Hún vildi „hvetja þá til þess að ein­falda reglur í stað þess að bæta í, að við pössum okkur á því að kaf­færa ekki litla rekstr­ar­að­ila í óhóf­legum kröfum og eft­ir­liti. Við gætum þá séð meira frelsi, minni sóun og meiri fram­leiðni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár