Bað um frí frá vinnu til að sinna smituðum á Landspítalanum

„Þegar mest á reynir stöndum við saman öll sem eitt,“ segir Gísli Níls Einarsson. Að öllu jöfnu starfar hann sem sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS en er núna kominn til starfa á göngu­deild Land­spítala fyrir COVID-19 smitaða.

Gísli Níls Einarsson hjúkrunarfræðingur
Gísli Níls Ein­ars­son hjúkr­un­ar­fræð­ingur Hann svar­aði ákalli heil­brigð­is­yf­ir­valda og starfar nú á nýrri göngu­deild Land­spít­ala fyrir COVID-19 smit­aða. Mynd: Aðsend

Gísli Níls Einarsson hjúkrunar­fræðingur, sem að öllu jöfnu starfar sem sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS, er einn af þeim sem hefur svarað kalli heilbrigðis­yfirvalda um að ganga til liðs við bakvarða­sveit heilbrigðis­þjónustunnar. Starfs­vettvangur Gísla er er nú göngu­deild Land­spítala fyrir COVID-19 smitaða. „Þetta er það sem ég get lagt af mörkum í þessu stóra verkefni sem við erum að fást við,“ segir hann. 

Gísli er ekki ókunnugur krefjandi aðstæðum. Auk hjúkrunar­fræði­menntunarinnar er hann slökkviliðs- og sjúkra­flutninga­maður og starfaði meðal annars við sjúkra­flug, sérhæfði sig í bráða­þjónustu og -flutningum, var deildar­stjóri á Land­spítala og starfaði á vegum Íslensku friðar­gæslunnar með breska hernum á hópslysa­sjúkrahúsi NATO í Bosníu. Þá setti Gísli upp heilsu­gæslustöð á byggingar­svæði Alcoa á Reyðar­firði þegar bygging álversins stóð yfir. Undan­farin 13 ár hefur hann starfað hjá VÍS, sem sérfræðingur í forvörnum þar sem hann veitir meðal annars fyrir­tækjum og opinberum aðilum ráðgjöf um forvarnir og öryggismál. 

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár