Grikkir ganga að kjörborðinu - staðan hnífjöfn samkvæmt könnunum

Kjör­staðir voru opnaðir í Grikk­landi klukkan fjögur í nótt að íslenskum tíma en Grikkir kjósa í dag um hvort þeir vilji ganga að samkomu­lagi við kröfuhafa gríska ríkisins um frekari aðhaldsaðsgerðir í ríkis­rekstri landsins í staðinn fyrir frekari fjárhags­aðstoð. Skoðana­kannanir í síðustu viku bentu til þess að samkomu­lagið yrði samþykkt með naumindum en síðustu kannanir sem voru gerðar áður en þjóðar­atkvæða­greiðslan sýndu að þjóðin virðist skiptast algjör­lega jafnt í afstöðu sinni gagnvart því hvað skuli gera.

Kjör­staðir loka flestir klukkan fjögur að íslenskum tíma, þótt mögulegt sé að halda þeim opnum tveimur tímum lengur krefjist aðstæður þess. Ef þeir loka á réttum tíma er búist við að fyrstu tölur úr atkvæða­greiðslunni muni liggja fyrir um klukkan 18 í kvöld að íslenskum tíma.

Evrusamstarfið undir


Gríska rík­is­stjórnin, undir for­ystu Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra, boð­aði til kosn­ing­anna í júní. Tsipras hefur verið mjög iðinn við að koma fram und­an­farið og hvetja fólk til að kjósa "nei". Hann seg­ist sann­færður um að það muni styrkja stöðu hans í frek­ari samn­ings­við­ræðum við þrieykið svo­kall­aða, Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn, Evrópska Seðla­bank­ann og fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins, sem eru helstu eig­endur krafna á hendur gríska rík­inu. Hljóðið í leið­togum Evr­ópu­sam­bands­ins er hins vegar annað.

Þeir hafa sagt að Grikkir muni þurfa að yfirgefa evru­samstarfið kjósi gríska þjóðin gegn samkomu­laginu. Því verði í raun sjálfhætt ef það verði niður­staðan. Auk þess þykir mjög líklegt að ríkis­stjórn Grikk­lands, undir forystu Syriza flokksins, falli verði samkomu­lagið samþykkt í dag.

Ásakanir um hryðjuverk og hótun um handarskurð


Yanis Vanoufakis, fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, hefur einnig farið mik­inn í alþjóð­legum fjöl­miðlum í aðrag­anda kosn­ing­anna. Í gær ásak­aði hann kröfu­hafa lands­ins um hryðju­verk í við­tali við spænska blaðið El Mundo. Í við­tali við Bloomberg á fimmtu­dag sagði hann myndi frekar skera af sér hend­ina heldur en að skrifa undir sam­komu­lag við kröfu­hafa sem gerir gríska rík­inu ókleift að end­ur­skipu­leggja skulda­stöð­una. Hann sagð­ist enn fremur myndu segja af sér ef gríska þjóðin kýs „Já“ í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni.

Yanis Varoufakis, fjármála­ráðherra Grikk­lands, hefur ásakað kröfuhafa Grikkja um hryðju­verk og sagt að hann skeri frekar af sér hendina en að skrifa undir samkomulag sem hann veit að Grikkir ráða ekki við.

Yanis Varoufakis, fjármálaráðherra Grikklands, hefur ásakað kröfuhafa Grikkja um hryðjuverk og sagt að hann skeri frekar af sér hendina en að kjósa með samkomulaginu í dag.
Yanis Varoufakis, fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, hefur ásakað kröfu­hafa Grikkja um hryðju­verk og sagt að hann skeri frekar af sér hend­ina en að kjósa með sam­komu­lag­inu í dag.

Í viðtalinu við El Mundo í dag sagði hann: "Það sem þeir eru að gera Grikk­landi á sér nafn - hryðju­verk. Það sem Brussel og þríeykið [e. troika] vilja er að "já" vinni svo þeir geta auðmýkt Grikki".

Mikið er undir á sunnu­daginn fyrir ríkis­stjórn Alexis Tsipras forsætis­ráðherra sem gæti fallið verði samþykkt samninga við kröfuhafa niður­staðan. Leiðtogar stærstu evru­ríkjanna og Evrópu­sambandsins hafa sagt með skýrum hætti að í raun kjósi Grikkir um áfram­haldandi veru í evru­samstarfinu.


Bankar í Grikk­landi hafa verið lokaðir alla vikuna og geta Grikkir ekki tekið hærri fjárhæð en 60 evrur, ríflega átta þúsund krónur, úr hrað­bönkum á dag. Óvissa um fram­haldið hefur leitt til óvenjulegra aðstæðna í landinu, svo ekki sé meira sagt, þar sem langar biðraðir myndast við hraðbanka og bæði launþegar og atvinnu­rekendur vita ekkert um framhald mála.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár