Púað á Trump sem ætlar að bjóða sig fram til forseta þótt hann fái ekki útnefningu

Donald Trump, sem sækist eftir því að verða forseta­fram­bjóðandi Repúblikana­flokksins í bandarísku forseta­kosningunum á næsta ári, segist ekki tilbúinn að styðja aðra fram­bjóðendur flokksins hljóti þeir útnefninguna til að bjóða sig fram. Trump sagði líklegt að hann myndi bjóða sig fram til forseta hvernig sem forkjör Repúblikana­flokksins færi. Þetta kom fram í kappræðum tíu fram­bjóðenda repúblikana­flokksins sem fram fóru í Cleveland í nótt. Áhorf­endur í salnum brugðust við með því að púa á Trump.

Þátttakendurnir tíu í kappræðunum voru valdir af Fox sjónvarpsstöðinni eftir því hversu mikið fylgi þeir voru að mælast með í aðdraganda þeirra.
Þátt­tak­end­urnir tíu í kapp­ræð­unum voru valdir af Fox sjón­varps­stöð­inni eftir því hversu mikið fylgi þeir voru að mæl­ast með í aðdrag­anda þeirra.

Þátt­takendurnir tíu í kapp­ræðunum voru valdir af Fox sjónvarps­stöðinni eftir því hversu mikið fylgi þeir voru að mælast með í aðdrag­anda þeirra.

Þátt­tak­endur í kapp­ræð­unum voru valdir af Fox sjón­varps­stöð­inni eftir því hversu mikið fylgi þeir voru að mæl­ast með í aðdrag­anda þeirra. Samkvæmt frétt BBC af kapp­ræð­unum náði hinn mjög svo umdeildi Trump að fanga mestu athygl­ina. Hann neit­aði til að mynda að draga til baka ýmis móðg­andi og lít­il­lækk­andi ummæli sem hann hefur látið falla um konur. Þegar Trump var spurður út í ummæli sem að margra mati fela í sér kven­hatur, en hann hefur meðal ann­ars kallað konur sem honum líkar ekki við feit svín, hunda, sóða og ógeðs­leg dýr, sagði hann að ummælin hefðu ein­ungis átt við um leik- og sjón­varps­kon­una Rosie O´Donnell og að póli­tískur rét­trún­aður væri eitt helsta vanda­mál Banda­ríkj­anna. "Ég hef ekki tíma fyrir póli­tískan rét­trúnað," sagði Trump.


Jeb Bush, sá fram­bjóð­andi sem mælist oft­ast næst Trump í fylgi um þessar mundir, sagði að Trump stuðl­aði að sund­ur­lyndi með ummælum sínum um inn­flytj­endur.



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár