Ástandið á leigumarkaði: Leigja bílskúr með myglusveppum á 100 þúsund

Anika Lind Hall­dórs­dóttir, 22 ára móðir í Vest­ur­bænum, hélt að hún væri ólétt vegna morg­unó­gleð­innar sem hún upp­lifði, en komst að því að bíl­skúr sem hún leigir á hund­rað þús­und krónur á mán­uði var fullur af myglu­sveppum. Þeir hafa læst sig í rúmið hennar og föt.

Anika með syni sínum
Anika með syni sínum Fjögurra ára sonur hennar fær ekki að fara inn á heim­ili hennar vegna myglu­sveppa­vaxtar í íbúð­inni. Mynd: Úr einkasafni

„Á tíma­bili hélt ég að ég væri ólétt,“ segir Anika Lind Hall­dórs­dóttir, 22 ára kona sem leigði bíl­skúr í Vest­ur­bænum án þess að vita að myglu­sveppir væru alltum­lykj­andi í hús­næð­inu. Anika og kær­asti hennar hafa fundið fyrir alvar­legum lík­am­legum ein­kennum.

Anika Lind og kær­asti hennar leigja 28 fer­metra bíl­skúr við Holts­götu í Vesturbæ Reykja­víkur á 100 þús­und krónur. Myglu­svepp­ur­inn sem vex í íbúð­inni hefur læst sig í rúm þeirra, hátal­ara­kerfi, stofu­borð, þvotta­vél og fötin þeirra.

„Þetta eru 28 fer­metrar á 100 þús­und. Sem er rosa­legt. Það eru ekki bara sveppir, heldur enda­laust af pöddum og kóngu­lóm,“ útskýrir Anika í sam­tali við Stundina, þar sem hún er stödd á heim­ili sínu.

Anika er í leit að nýju heim­ili vegna alvar­legra áhrifa myglu­svepps á heilsu­far hennar og kærasta hennar, en hefur ekki haft erindi sem erf­iði.

„Leigu­verðið er að hækka svo rosa­lega und­an­farna mán­uði. Leigan er oft­ast 180 þús­und eða meira. Við ráðum kannski við 140 á mán­uði, þá helst með húsa­leigu­bótum. Við ráðum ekk­ert við svona dýrar íbúðir,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár