Trump á miklu skriði í skoðanakönnunum

Auðkýfingurinn Donald Trump leiðir enn kapp­hlaupið um útnefningu Repúblikana sem forseta­fram­bjóðandi flokksins.

Samkvæmt nýrri skoðana­könnun CNN frétta­stöðvarinnar sem birt var í dag, sögðust 18 prósent aðspurðra kjósenda Repúblikana styðja Trump og þá nýtur Jeb Bush stuðnings 15 prósenta aðspurðra. Scott Walker, ríkis­stjóri Wisconsin, kom þriðji með tíu prósenta stuðning.

Fylgi Trumps jókst um heil sex prósentu­stig frá síðustu könnun CNN, sem framkvæmd var í síðasta mánuði, á meðan fylgi keppinauta hans hefur haldist stöðugt.

Þrátt fyrir niður­stöður skoðana­kannanna er alls óvíst hvort Trump hlýtur útnefningu Repúblika sem forseta­fram­bjóðandi flokksins, en miðað við fylgi hans í skoðana­könnunum virðist hann njóta tölu­verðra vinsælda á meðal flokkssystkinna sinna. Þá vilja 52 prósent aðspurðra Repúblikana að Trump fari alla leið, og þá vilja 42 prósent stuðnings­manna annarra fram­bjóðenda að Trump haldi áfram kosninga­baráttunni.

Í skoðana­könnun NBC sjón­varp­stöðvarinnar sem framkvæmd var á meðal kjósenda í New Hampshire, og var sömuleiðis birt í dag, nýtur Trump stuðnings 21 prósents aðspurðra Repúblikana. Þar styðja ennfremur 14 prósent Bush og 12 prósent myndu kjósa Walker.

Í samskonar könnun NBC í Iowa leiðir Walker kosninga­baráttuna með 19 prósent, og Trump nýtur stuðnings 17 prósenta aðspurðra kjósenda Repúblikana­flokksins.

Þá sýnir enn ein skoðana­könnunin hversu vel Trump stendur að vígi, en samkvæmt könnun YouGov nýtur bandaríski fasteigna­mógúllinn stuðnings 28 prósenta kjósenda Repúblikana­flokksins á landsvísu.

Eins og áður segir bætir Trump við fylgi sitt á milli skoðana­kannanna, og það þrátt fyrir gríðar­lega umdeild ummæli sín um John McCain, þegar hann sagði að öldunga­deildar­þing­maðurinn væri ekki stríðs­hetja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár