„Ég sé og ég heyri“

Nýr þing­maður VG seg­ist þekkja fátækt af eigin raun og að hún myndi hjálpa öllum þeim sem leitað hafa til hennar með ákall um aðstoð ef hún gæti.

Jódís Skúladóttir nýr þingmaður VG.
Jódís Skúla­dóttir nýr þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

„Ástæðan fyrir því að ég kveð mér hljóðs hér í dag er sú að póst­hólfið mitt er yfir­fullt af póstum frá fátækum Íslend­ingum, öryrkjum sem hrópa á aðstoð fyrir jólin. Mig langar að segja við ykkur: Ég sé og ég heyri og ef ég gæti svarað hverjum pósti og ef ég gæti hjálpað hverju og einu þá myndi ég gera það en á því hef ég ekki tök.“

Þetta sagði Jódís Skúla­dóttir þing­maður Vinstri grænna undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag en um var að ræða jóm­frú­ar­ræðu Jódísar.

Hún hóf mál sitt á að segja að hún stæði í pontu af mik­illi auð­mýkt þegar hún flytti jóm­frú­ar­ræðu sína. Það væru for­rétt­indi að fá að taka sæti á Alþingi og tæki hún því af mik­illi ábyrgð.

Víða á landsbyggðinni enga hjálp að fá

Eins og áður kom fram sagð­ist þing­mað­ur­inn ekki geta hjálpað öllum þeim sem hafa haft sam­band við hana með ákall um aðstoð. Hún sagð­ist hins vegar geta lagt sig alla fram við að standa með þeim málum sem koma inn á þingið til þess að veita þeim braut­ar­gengi og til þess að laga stöð­una til lengri tíma.

„Mig langar að segja ykkur að fátækt þekki ég á eigin skinni. Ég var barn­ung móðir og ég hef verið not­andi að alls konar þjón­ustu sem venju­legt fólk úti í sam­fé­lag­inu eins og ég og þið þurfum að nota. Það sem mig langar til að tala um hér í dag er líka það sem er sam­merkt með allri þeirri þjón­ustu sem ég hef þurft að nota sem venju­legur þegn í þessu landi. Elsti sonur minn sem ég eign­að­ist þegar ég var 14 ára gömul var lang­veikt barn. Barna­spít­al­inn er í Reykja­vík. Ég er þol­andi kyn­ferð­is­of­beldis. Hjálpin er í Reykja­vík. Ég er lög­fræð­ingur að mennt. Ég þurfti að sækja mína menntun til Reykja­víkur,“ sagði hún.

Jódís bætti því við að allir Íslend­ingar væru hluti af þessu sam­fé­lagi en fólk af lands­byggð­inni byggi alltaf við skertan kost. „Hér hefur verið talað um að fólk standa í röðum eftir jóla­mat. Víða á lands­byggð­inni eru engar raðir af því að þar er engin hjálp. Þetta var það sem mig lang­aði að ávarpa í minni fyrstu ræðu,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár