Stór fyrirtæki með hagsmuni af leikreglum atvinnulífsins í fjölmiðlarekstri

„Við þekkjum það auð­vitað að í vax­andi mæli eru fjöl­miðlar á Íslandi í eigu stórra fyr­ir­tækja sem hafa hags­muni af leik­reglum í atvinnu­líf­inu,“ segir Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Gagnrýndur
Gagn­rýndur Páll Gunnar, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sætir oft harðri gagn­rýni. Hún kemur gjarnan frá sterk­ustu hags­muna­sam­tök­unum og birt­ist í við­skipta­blöð­unum sem hér eru gefin út. Mynd: Heida Helgadottir

Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, og hans starfs­menn sæta oft harðri gagn­rýni fyrir störf sín og fram­göngu. Ef tekið er mið af opin­berri umræðu mætti ætla að stríð væri á milli fyr­ir­tækja í land­inu og eft­ir­lits­ins.

Í við­tali í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar seg­ist hann vega og meta alla gagn­rýni „en besta gagn­rýnin er auð­vitað sú sem er byggð á réttum upp­lýs­ingum og oft og tíðum er það ekki raunin“.

Rödd neytenda vantar

„Það er ekk­ert slæmt við það – þvert á móti jákvætt – að það sé fjallað um sam­keppn­is­mál, þó maður myndi kjósa að það væri gert á víð­ari grunni. Að raddir litlu fyr­ir­tækj­anna og raddir neyt­end­anna hefðu meira vægi hjá þeim fjöl­miðlum sem eru að fjalla um við­skipta­mál­efni á Íslandi. Ef þú berð saman við­skipta­tíma­rit hér á landi og við­skipta­tíma­rit í kringum okkur þá sérðu strax mun á því hvað sjón­ar­horn neyt­enda fær mikið vægi, hér versus til dæmis á Norð­ur­lönd­unum.“

Páll Gunnar telur að stjórn­völd verði að horfa til þess þegar ákveðið er hvernig styðja eigi við rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla.

„Við höfum vakið athygli á því að þegar sá stuðn­ingur er útfærður sé þá rétt að horfa til þess­ara hug­taka í fjöl­miðla­rétti, fjöl­ræði og fjöl­breytni, og huga að því hvort að stuðn­ing­ur­inn ætti í rík­ari mæli að bein­ast að þeim miðlum sem tala fyrir þeim sjón­ar­miðum sem hafa kannski litla fjár­muni á bak­við sig, á meðan stuðn­ing­ur­inn ætti þá að vera minni gagn­vart þeim fjöl­miðlum sem hafa sterka bak­hjarla,“ segir hann.

Hagsmunaöfl eiga fjölmiðla

„Við þekkjum það auð­vitað að í vax­andi mæli eru fjöl­miðlar á Íslandi í eigu stórra fyr­ir­tækja sem hafa hags­muni af leik­reglum í atvinnu­líf­inu. Það er auð­vitað sem þarf að taka til­lit til líka og stjórn­völd þurfa að horfa á,“ segir Páll Gunnar og vísar til þess að stórir leik­endur í atvinnu­líf­inu eru og hafa verið stærstu eig­endur margra fjöl­miðl­anna.

„Ég held að við höfum ekki gætt að því að tryggja þetta jafn­vægi.“

Það á við um Morg­un­blaðið, þar sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hafa fjár­magnað mik­inn tap­rekstur, og Frétta­blaðið, þar sem Helgi Magn­ús­son fjár­festir, sem setið hefur í stjórnum margra stórra fyr­ir­tækja, tók við eign­ar­hald­inu af Ingi­björgu Pálma­dóttur, sem var einn umsvifa­mesti fjár­festir lands­ins ásamt eig­in­manni sínum um langt skeið. 

„Ég held að við höfum ekki gætt að því að tryggja þetta jafn­vægi. Það snýst að því hvernig búið er að hags­muna­öflum sem hafa lítið fjár­magn á bak­við sig, það snýr að fjöl­miðlum og því umhverfi sem fjöl­miðlar búa við, og það snýst líka um hina almennu stjórn­mála­um­ræðu,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Sjá meira

Viðtal

Hags­munir fárra sterkra ráði of miklu

Á sama tíma og risa­vaxnar sektir hafa verið lagðar á íslensk fyr­ir­tæki vegna sam­keppn­islaga­brota vilja Samtök atvinnu­lífs­ins rann­saka Sam­keppn­is­eft­ir­litið og ráð­herra tak­marka heim­ildir þess. Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri eft­ir­lits­ins, segir hags­muni þeirra sem mest eiga ráða miklu á Íslandi og að hávær gagn­rýni end­ur­spegli það. Sam­keppn­is­reglur séu sér­stak­lega mik­il­vægar fyrir lítið land eins og Ísland, þvert á það sem opin­ber umræða gefi til kynna. Eftirlit hafi verið talað niður af þeim sömu og semja regl­urnar sem eiga að gilda.

23 mín. lestur

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár