Ekki sammála því að við blasi augljós spilling

For­sæt­is­ráð­herra er ekki sam­mála for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar um að salan á Íslands­banka hafi verið „aug­ljós spill­ing“ en þau eru sam­mála um það að almenn­ingur verði að vita hverjir keyptu bank­ann.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar ræddu nýlega sölu á 22,5 pró­senta hlut rík­is­sjóðs í Íslands­banka í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Ráð­herr­ann sagði meðal ann­ars að það væri alger­lega ljóst af hennar hálfu að þegar rík­is­eign á borð við Íslands­banka er seld þá ætti að liggja fyrir hverjir keyptu. „Það eru upp­lýs­ingar sem íslenskur almenn­ingur á heimt­ingu á.“

Logi hóf fyr­ir­spurn sína á því að lesa upp það sem ritað er í hvít­bók um íslenskt fjár­mála­kerfi en þar segir meðal ann­ars: „Heil­brigt eign­ar­hald er mik­il­væg for­senda þess að banka­kerfið hald­ist traust um langa fram­tíð. Í því felst að eig­endur banka séu traustir, hafi umfangs­mikla reynslu og þekk­ingu á starf­semi banka og fjár­hags­lega burði til að standa á bak við bank­ann þegar á móti blæs. Mik­il­vægt er að eig­endur hafi lang­tíma­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi.“

Vitum ekki af hverju fjárfestarnir voru valdir

Þing­mað­ur­inn sagði að til að fá slíka fjár­festa gæti vissu­lega verið rétt­læt­an­legt að gefa afslátt frá mark­aðs­verði eins og gert var í nýaf­stað­inni sölu á hlut í Íslands­banka.

„Það er hins vegar óhætt að full­yrða að það gæti nokk­urrar tor­tryggni eftir þessa síð­ustu sölu Íslands­banka. Svo virð­ist sem nokkrir mjög litlir aðilar hafi verið hand­valdir og boðið að kaupa með afslætti og auk þess heyr­ast sögur af því að erlendum aðilum sem keyptu í fyrsta sölu­ferli og seldu strax aftur hafi verið hleypt aftur inn núna, sem sagt svo­kall­aðir spá­kaup­menn.

Við vitum ekk­ert hverjir þetta eru, af hverju þeir voru valdir frekar en aðrir, hvort þeir hafi ábyrgð­ar­kennd eða fjár­hags­lega burði eða hvort þeir hafi lang­tíma­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi eins og talað er um í hvít­bók­inni. Traust er mik­il­vægt sér­hverju fjár­mála­kerfi og það sem helst skapar van­traust er leynd og pukur í kringum mikla hags­muni. Það er óásætt­an­legt að stærsti eig­andi Íslands­banka, íslenska þjóðin, fái ekki að vita allar stað­reyndir máls­ins, ekki síst hverjir fengu að kaupa, á hvaða for­sendum og af hverju þeir voru sér­valdir,“ sagði hann.

Logi sagði enn fremur að það blasti við „aug­ljós spill­ing“ og ein­ungis spurn­ing hversu víð­tæk hún væri. Því spurði hann Katrínu hvað hún ætl­aði að gera í mál­inu. „Ætlar hún að láta þetta við­gang­ast?“ spurði hann.

Réttast að Alþingi geri viðeigandi lagabreytingar ef upplýsingar fást ekki

Katrín svar­aði og þakk­aði Loga fyrir að taka þetta mál upp. „Um margt get ég verið sam­mála honum þó að ég sé ekki sam­mála því að við blasi að hér sé um aug­ljósa spill­ingu að ræða. Vandinn er sá að það ríkir ekki fullt gagn­sæi um ferlið og það gengur ekki og þar erum við hátt­virtur þing­maður sam­mála. Nú var bæði fjár­laga­nefnd og efna­hags- og við­skipta­nefnd kynnt til­laga Banka­sýsl­unnar sem fer með eign­ar­hluta rík­is­ins í bönk­unum. Það var gert á sínum tíma til að tryggja ákveðna arms­lengd, eins og það heitir, frá hinu póli­tíska valdi. Það ferli var kynnt fyrir nefnd­unum og í sjálfu sér liggur algjör­lega fyrir að meiri­hluti beggja nefnda mælti með því að haf­ist yrði handa við að ráð­ast í fram­hald á sölu.“

Hún sagði að í upp­lýs­ingum sem Banka­sýslan hefur birt kæmi fram fjöldi og dreif­ing fjár­festa, að 190 inn­lendir og 19 erlendir aðilar hefðu tekið þátt og inn­lendir líf­eyr­is­sjóðir hefðu verið langstærstir. Væri það sömu­leiðis mat Banka­sýsl­unnar að sölu­með­ferðin hefði verið í fullu sam­ræmi við til­lögur stofn­un­ar­innar frá 20. jan­úar og kynn­ingar á þeim.

„Mér finnst rétt að ítreka hér að það var Banka­sýslan sem mat hverjir væru skil­greindir lang­tíma­fjár­festar af því að hátt­virtur þing­maður spyr um það. Hins vegar er það alger­lega ljóst af minni hálfu að þegar rík­is­eign á borð við Íslands­banka er seld þá á að liggja fyrir hverjir keyptu. Það eru upp­lýs­ingar sem íslenskur almenn­ingur á heimt­ingu á. Ef ein­hver tækni­leg atriði valda því að Banka­sýsla rík­is­ins telur sig ekki geta birt þær upp­lýs­ingar tel ég rétt­ast að Alþingi geri við­eig­andi breyt­ingar á lagaum­hverfi þannig að unnt sé að birta þær því að annað gengur ekki.

Þessum sjón­ar­miðum hef ég komið skýrt á fram­færi við stjórn og fram­kvæmda­stjóra Banka­sýslu rík­is­ins, á ráð­herra­nefnd­ar­fundi um efna­hags­mál, sem hald­inn var á föstu­dag, því það liggur alger­lega fyrir að þegar um er að ræða aðferða­fræði á borð við þessa þá mun alltaf vakna tor­tryggni ef ekki liggur fyrir hverjir keyptu,“ sagði Katrín.

Mun ráðherrann rannsaka málið?

Logi kom aftur í pontu og sagði að það hefðu verið hans orð að spill­ing blasti við.

„En ég spyr hvort hún telji að þær upp­lýs­ingar sem komið hafa fram gefi til­efni til að rann­saka hvort spill­ing hafi átt sér stað. Eins langar mig að heyra hvort hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra telur að sporin hræði nú og það þurfi að skoða fram­haldið. Hvaða skref verða stigin næst? Eru til dæmis núver­andi aðilar sem sáu um söl­una fyrir okkar hönd hæfir til þess að selja aftur ef það á að halda áfram að selja bank­ann? Eða hyggst hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra beita sér fyrir því að aðrar leiðir verði not­aðar og annað fólk fengið að borð­inu?“ spurði hann og bætti við: „Mun hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra rann­saka hvort spill­ing hafi átt sér stað?“

Fyrst að sjá hverjir keyptu

Katrín svar­aði í annað sinn og sagði að þær upp­lýs­ingar sem hafa verið birtar, almenn­ingi og Alþingi – og ráð­herrum þar með talið, sýndu að afslátt­ur­inn marg­um­ræddi sem hefði verið til umræðu væri umtals­vert lægri afsláttur en við mætti búast í ferli sem byggir á þess­ari aðferða­fræði.

„Meðal ann­ars hefur verið bent á það að afsláttur hafi að með­al­tali verið um 6,4 pró­sent hjá sam­bæri­legum evr­ópskum félögum en hann hafi orðið hærri eftir inn­rás Rúss­lands í Úkraínu. Þetta er eitt af því sem mér finnst mik­il­vægt að komi fram,“ sagði hún.

Katrín telur að þau verði að tryggja algjört gagn­sæi um þessa sölu og hver keypti. Þá sé hægt að leggja mat á það hvort rétt sé að afla frek­ari upp­lýs­inga um málið.

Benti hún á að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefði óskað eftir lista með þeim fjár­festum sem keyptu í útboð­inu með bréfi til Banka­sýsl­unnar þann 30. mars.

„Ég tel fulla ástæðu til þess að þessar upp­lýs­ingar verði afhentar. Það hefur verið óskað eftir áliti Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands um hvort ein­hverjar laga­legar hindr­anir séu í þeim vegi og sé það svo þá tel ég eðli­legt að Alþingi taki það til sér­stakrar skoð­unar,“ sagði ráð­herr­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár