Loðnuveiðarnar skiluðu útgerðunum átta milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi

Afla­verð­mæti við fyrstu sölu í fyrra var það mesta sem útgerðir hafa fengið síðan 2015. Á fyrstu þremur mán­uðum þessa árs jókst afla­verð­mætið svo um 26 pró­sent frá síð­asta ári, að mestu vegna þess að loðna var veidd á ný.

Loðnubrestur var 2019 og 2020. Hún var veidd á ný í ár og skilaði auknu verðmæti til útgerða.
Loðnu­brestur var 2019 og 2020. Hún var veidd á ný í ár og skil­aði auknu verð­mæti til útgerða. Mynd: Úr safni

Verðmæti afla við fyrstu sölu á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2021 var 43,2 millj­arðar króna. Það er 26 pró­sent meira en útgerðir fengu fyrir afla við fyrstu sölu á sama tíma­bili í fyrra.

Þar munar lang­mest um loðnu­veiði, sem skil­aði átta millj­örðum króna í kass­ann, en engin loðnu­veiði var til staðar árin 2019 og 2020. Útgerð­ar­menn bjugg­ust við því að heild­ar­virði loðnu­ver­tíð­ar­innar yrði hátt í 20 millj­arðar króna og því má búast við því að afla­verð­mæti á öðrum árs­fjórð­ungi 2021 sé líka tölu­vert umfram það sem það var í fyrra.

Verðmæti botn­fisk­teg­unda jókst einnig lít­il­lega á fyrsta árs­fjórð­ungi frá því í fyrra, eða um tvo pró­sent.

Þetta kemur fram í nýlegum tölum frá Hagstofu Íslands um afla­verð­mæti.

Afla­verð­mæti fyrstu sölu á afla sem íslensk fisk­veiði­skip veiddu í fyrra var rúmum þremur millj­örðum krónum meira en á árinu 2019 og rúmum 20 millj­örðum krónum meira en það var á árinu 2018, sam­kvæmt bráða­birgða­tölum um afla­verð­mæti sem Hagstofa Íslands birti í mars.

Afla­verð­mætið fyrir allt árið 2020 var 148 millj­arðar króna sem er það mesta sem verð­mætið hefur verið innan árs síðar árið 2015.

Því hefur sjáv­ar­út­vegur farið vel út úr COVID-19 ástand­inu. Greinin átti sitt besta ár í nokkurn tíma í fyrra og verð­mæti afla við fyrstu sölu á fyrsta árs­fjórð­ungi jókst um rúman fjórð­ung.

Hagurinn vænkast um tæpa 500 milljarða frá hruni

Kjarninn greindi frá því í sept­em­ber 2020 að íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hefðu hagn­ast um 43 millj­arða króna á árinu 2019. Það var um 60 pró­sent meiri hagn­aður en var af rekstri þeirra árið á undan þegar hann var 27 millj­arðar króna. Alls nam hagn­aður fyr­ir­tækj­anna 197 millj­örðum króna á fimm ára tíma­bili, frá byrjun árs 2015 og út árið 2019. Á sama tíma hafa þau greitt 43 millj­arða króna í tekju­skatt.

Frá hruni nemur sam­an­lagður hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja 439 millj­örðum króna.

Reikn­aður tekju­skattur þeirra hækk­aði um 50 pró­sent milli 2018 og 2019 og var níu millj­arðar króna í stað sex. Veiði­gjöld lækk­uðu hins vegar umtals­vert á milli ára og voru 6,6 millj­arðar króna, sem er 4,7 millj­örðum króna minna en þau voru árið áður.

Þetta kom fram í Sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunni Deloitte sem kynntur var á Sjáv­ar­út­vegs­deg­inum 2020 sem fór fram 16. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Gagna­grunn­ur­inn inni­heldur rekstr­ar­upp­lýs­ingar úr 89 pró­sent sjáv­ar­út­vegs­geirans en fjár­hæð­irnar sem settar eru fram í honum hafa verið upp­reikn­aðar til að end­ur­spegla 100 pró­sent hans.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin áttu eigið fé upp á 297 millj­arða króna í lok árs 2018. Frá hruni og fram að þeim tíma batn­aði eig­in­fjár­staða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna um 376 millj­arða króna, en hún var nei­kvæð í lok árs 2008.

Alls greiddu fyr­ir­tækin sér arð upp á 10,3 millj­arða króna á árinu 2019. Frá árinu 2010 og út árið 2019 hafa þau greitt 103,2 millj­arða króna til eig­enda sinna í arð­greiðslur. Hagur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna hefur því vænkast um 479,2 millj­arða króna frá hruni og fram að byrjun árs í fyrra.

Þrjár blokkir halda á þorra kvótans

þrjár blokkir, sú sem hverf­ist í kringum Samherja, sú sem hverf­ist í kringum Brim og sú sem hverf­ist í kringum útgerð Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, halda sam­tals á 45,6 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Sam­an­lagt mark­aðsvirði hans er um 544,8 millj­arðar króna miðað við síð­ustu gerðu við­skipti með afla­heim­ildir.

Mark­aðsvirði alls úthlut­aðs kvóta er um 1.195 millj­arða króna, eða um 41 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu á árinu 2021.

Alls er 67,4 pró­sent alls úthlut­aðs afla í höndum 15 útgerða sem margar hverjar tengj­ast inn­byrðis.

Í síð­asta mán­uði var 29,3 pró­sent hlutur í Síld­ar­vinnsl­unni seldur fyrir 29,7 millj­arða króna. Verð­mæt­ustu eignir hennar eru afla­heim­ildir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár