Bankakerfi Grikklands að hruni komið - Áhlaup á bankana

Grískir bankar berjast nú fyrir lífi sínu, samkvæmt frásögnum helstu alþjóð­legu viðskipta­miðlanna, en í dag hefur óvenju mikið fé verið tekið út úr bönkunum, sem er framhald af alvarlegu vantrausti í síðustu viku. Þá voru þrír milljarðar evra teknir úr bönkunum, jafnvirði tæplega 500 milljarða króna, sem eykur á lausafjár­vanda þeirra á erfiðum tíma, að því er fram kemur í umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC.

Skulda­vandi Grikkja er enn óleystur, það er að stjórn­völd í Grikk­landi, undir forystu Syriza flokksins, hafa ekki náð samkomu­lagi við lána­drottna um að lengja í lánum og fresta umfangs­miklum hagræðingar­aðgerðum. Eitt af kosninga­loforðum Syriza var að endur­semja við lána­drottna og hætta tafar­laust við niður­skurðar­áform hjá hinu opinbera, þar á meðal uppsagnir þúsunda starfs­manna ríkisins.

Ekkert hefur þó gengið hjá flokknum að ná þessu í gegn, þar sem fjár­mögnunar­áætlun sem grísk stjórn­völd gerðu við Alþjóða­gjaldeyris­sjóðinn, Evrópu­sambandið og aðra kröfuhafa, byggði á því að rekstur ríkisins yrði endur­skipulagður með sársauka­fullri hagræðingu. Samtals var áætlunin upp á 240 milljarða evra, en skammtíma­skuld­bindingar, sem nú eru að valda mestum erfið­leikum, eru upp á 7,2 milljarða evra. Þar á meðal er gjalddagi á láni upp á 1,6 milljarða evra hinn 30. júní næst­komandi. Ef Grikkjum tekst ekki að endur­fjármagna skuldir sínar fyrir þann tíma, og greiða lánið til baka í samræmi við samningar, þá býður fátt annað en gjaldþrot ríkis­sjóðs Grikk­lands, með tilheyrandi efnahags­hremmingum í Evrópu.

Alexis Tsipras, forsætis­ráðherra, sem hefur setið fundi um stöðu mála með rússneskum stjórn­völdum að undan­förnu, hefur þó sagt að allt verði gert til þess að ná samkomu­lagi um nýja ríkis­fjármála­áætlun fyrir þann tíma sem er til stefnu.


Meeting with the Russian delegation. #SPIEF #Greece pic.twitter.com/MYVOfbO9GD


— Alexis Tsipras (@tsipras_eu) June 19, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár