Samkomubann fram yfir páska

Samkomu­bann verður frá og með 15. mars til að hægja á útbreiðslu Covid-19 veirunnar.. Þetta kom fram á blaðamanna­fundi, sem Svandís Svavars­dóttir heilbrigðis­ráðherra boðaði til í Ráðherra­bústaðnum klukkan 11. Bannið varir fram yfir páska.

Frá blaðamannafundi heilbrigðisráðherra í morgun
Frá blaða­manna­fundi heil­brigð­is­ráð­herra í morgun Sam­komu­bann verður í fjórar vikur frá og með 15. mars. Mynd: Heiða Helgadóttir

Samkomu­banni verður  komið á frá 15. mars til 12. apríl til að hægja á útbreiðslu Covid-19 veirunnar.  Þetta kom fram á blaðamanna­fundi, sem Svandís Svavars­dóttir heilbrigðis­ráðherra boðaði til í Ráðherra­bústaðnum klukkan 11 í morgun.

„Við erum á fordæma­lausum tímum sem kalla á fordæma­lausar aðgerðir,“  sagði Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra. „Þau tímamót hafa orðið að sóttvarna­læknir hefur sent heilbrigðis­ráðherra tillögu um samkomu­bann. Þetta er í fyrsta skiptið í lýðveldis­sögunni,“ sagði Katrín. Hún sagðist fullviss um að samfélagið gæti tekist vel á við þetta.

Svandís sagði að bannið  væri samkvæmt lögum um sótt­varnir og verið væri að virkja heimildir sóttvarna­laga.  „Það sem um ræðir er samkomu­bann,“ sagði hún. Bannið myndi ekki eiga við um Leifsstöð.

Framhaldsskólum og háskólum lokað

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herraSamkomur þar sem 100 manns eða fleiri koma saman verða tak­mark­aðar í fjórar vikur frá mið­nætti 15. mars. Þetta þýðir að bannið mun vara til 12. apríl, sem er páska­dagur.

Í þessu felst, sagði Svandís, að samkomur þar sem 100 manns eða fleiri koma saman verða takmarkaðar í fjórar vikur  frá miðnætti 15. mars.  Þetta þýðir að bannið mun vara til 12. apríl, sem er páska­dagur. Að auki verður gerð sú krafa að þar sem fólk komi saman verði minnst tveir metrar milli fólks. 

Að auki verður skólum á háskóla- og framhalds­skólastigi lokað yfir sama tímabil. Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menningar­mála­ráðherra, sagði að takmarkanir yrðu settar í grunn- og leik­skólum.  Þær myndu felast í því að börn yrðu í eins litlum hópum og kostur væri á. „Þetta er útfærsla sem við hrindum í framkvæmd strax eftir hádegi í samráði við sveitar­félögin,“ sagði Lilja.

„Samkomur þar sem 100 manns eða fleiri koma saman verða takmarkaðar í fjórar vikur  frá miðnætti 15. mars“

Lögreglumenn verða ekki við stofnanir og verslanir

Á fundinum var spurt um hvort þetta ætti við um líkams­ræktar­stöðvar og fleiri slíka staði og hvort talið yrði þar inn og hvernig það yrði framkvæmt. Forsætis­ráðherra svaraði því til að lögreglu­menn yrðu ekki við allar stofnanir og verslanir. Treysta yrði almenningi til að fylgja þessum tilmælum.

Á blaða­manna­fundiFor­sæt­is­ráð­herra sagði að lög­reglu­menn yrðu ekki við allar stofn­anir og versl­anir til að gæta þess að þar væru ekki fleiri en 100 manns. Treysta yrði almenn­ingi til að fylgja til­mælum.

Heilbrigðis­ráðherra sagði að heilbrigðis­kerfið væri líklega vel undirbúið fyrir það sem framundan væri. Ekkert heilbrigðis­kerfi í heiminum réði við aðstæður ef allt færi á versta veg.

„Að lokum vil ég minna á að þessar aðgerðir miða að því að draga úr faraldrinum eins og kostur er,“ sagði Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir. „ Við verndum innviðina og verndum getu heilbrigðis­kerfisins til að takast á við þetta.“

„Þórólfur Guðnason: Þessar aðgerðir miða að því að draga úr faraldrinum eins og kostur er“

Samkvæmt vefsíðu Embættis land­læknis og almanna­varnar­deildar ríkis­lögreglu­stjóra, þar sem birtar eru upplýsingar um útbreiðslu Covid-19 veirunnar, eru nú 126 staðfest smit hér á landi, 919 eru í sóttkví og 126 í einangrun. 1.188 sýni hafa verið tekin.

Á fundi„Við erum á for­dæma­lausum tímum sem kalla á for­dæma­lausar aðgerðir,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra.

Langan veg frá því að ná yfirhöndinni

Páll Matthíasson, forstjóri Land­spítala, segir í forstjóra­pistli á vefsíðu spítalans að sú farsótt, sem nú sé glímt við, reyni á. „Við erum langan veg frá því að ná yfir­höndinni í barátt­unni við þennan vágest. Það mun hins vegar takast. Land­spítali gegnir sérstöku og mikilvægu hlutverki í því verkefni að tryggja sem minnstan skaða vegna Covid-19 veikinnar. Það ræðst annars vegar af þjónustu­hlutverki okkar, þeirri staðreynd að við höfum það starfs­fólk og þá aðstöðu sem grípa þarf til þegar allt þrýtur. Hins vegar þá er Land­spítali háskóla­sjúkrahús landsins og okkar starfs­fólk þarf að beita þekkingu sinni og reynslu til að finna bestu leiðir til sigurs,“ skrifar Páll.

„Skiljanlega er fólk áhyggju­fullt. Staðan er fordæma­laus, nýjar upplýsingar berast daglega og enginn getur haldið því fram að hafa öll svörin. Við þessar aðstæður þarf að samhæfa þá þekkingu sem fyrir liggur um veiruna, smit­leiðir, þá sem sýktir eru og ástand þeirra. Á sama tíma þarf að huga að getu sjúkra­hússins, tækjum, einangrunar­aðstöðu og síðast en ekki síst vinnu­færni starfs­fólks á tímum sóttkvíar og mögulegrar sýkingar. Þetta kallar á hraða ákvarðana­töku.“

Fréttin hefur verið uppfærð

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár