Munu ákveða hvað flokkist til auðlinda hér á landi

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga hefur verið sam­þykkt þar sem umhverfis- og auð­linda­ráð­herra er falið að fá sér­fræð­inga á sviði auð­linda­réttar, umhverf­is­fræða og umhverf­is­réttar til að semja frum­varp til laga sem skil­greini hvað flokk­ist til auð­linda hér á landi.

Alþingi sam­þykkti þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um skil­grein­ingu auð­linda í dag. Samkvæmt til­lög­unni felur Alþingi umhverfis- og auð­linda­ráð­herra að leggja fram laga­frum­varp á næsta lög­gjaf­ar­þingi þar sem skil­greint verði hvað flokk­ist til auð­linda hér á landi og hverjar auð­lindir Íslands séu. Sér­fræð­ingar á sviði auð­linda­réttar, umhverf­is­fræða og umhverf­is­réttar munu vinna drög að frum­varp­inu.

Sjö þing­menn Mið­flokks­ins lögðu til­lög­una fram en hún var sam­þykkt með 42 atkvæðum gegn fjórum. Ellefu greiddu ekki atkvæði.

Sam­bæri­legar þings­á­lykt­un­ar­til­lögur hafa áður verið lagðar fyrir Alþingi og tekur orða­lag til­lög­unnar nú mið af þeim ábend­ingum sem komu fram í umsögnum þá. Umhverfis- og sam­göngu­nefnd fjall­aði um málið og fékk sendar umsagnir frá Land­græðslu rík­is­ins, Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands, Samtökum nátt­úru­stofa og Veð­ur­stofu Íslands.

Vill ekki að ráðherra sé skyldaður til að leggja fram frumvarp

Í erind­unum frá umsagn­ar­að­ilum er breyt­ingum frá fyrri fram­lagn­ingu fagnað og stuðn­ingi lýst við fram­gang máls­ins. Í umsögnum Nátt­úru­fræði­stofn­unar Íslands og Samtaka nátt­úru­stofa er sér­stak­lega varað við því að auð­lindir verði skil­greindar á tæm­andi hátt og tekur umhverfis- og sam­göngu­nefnd undir ábend­ingar í þá veru.

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gerði grein fyrir atkvæði sínu á Alþingi í dag en hann sagði að þó að þings­á­lykt­un­ar­til­lagan hefði nú heldur skánað frá því hún kom fram fyrst þá vildi hann upp­lýsa þing­heim um það að fátt færi meira í taug­arnar á honum en þings­á­lykt­un­ar­til­lögur sem skylda ráð­herra til að leggja fram frum­varp á næsta þingi. Og þá sé sér­stak­lega tekið fram hverjir eigi að semja frum­varpið. „Og meira að segja á að segja hverjar eru auð­lindir Íslands. Verði þeim ráð­herra að góðu,“ sagði Brynjar en hann greiddi atkvæði á móti til­lög­unni.

Allir þættir náttúrunnar geta talist til náttúruauðlinda

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni segir að hug­takið auð­lind sé víð­feðmt og nái til margra þátta sam­fé­lags­ins. Talið sé að allir þættir nátt­úr­unnar, jörðin, líf­ríkið, vatn, sól­ar­ljós og loft geti talist til nátt­úru­auð­linda. Auð­lindir geti verið skil­greindar sem þjóð­ar­eign, svo sem fisk­stofnar.

„Afskipti rík­is­ins ná samt til margra ann­arra auð­linda en þeirra sem bein­línis eru taldar þjóð­ar­eign. Sam­fé­lagið sjálft hefur tekið á sig að stuðla að verndun mik­il­vægra þátta umhverf­is­ins, svo sem hrein­leika and­rúms­lofts­ins, og sett reglur um nýt­ingu dýra­stofna og ann­arra þátta líf­rík­is­ins. Segja má að nátt­úru­auð­lindir geti verið beinn þáttur í neyslu, t.d. úti­vist­ar­svæði og veiði­svæði fyrir villt dýr. Þær auð­lindir sem ekki telj­ast vera nátt­úru­auð­lindir eðli máls­ins sam­kvæmt eru t.d. mannauður, þekk­ing­ar­kerfi, gagna­grunnar og önnur hlið­stæð verk­efni sem menn hafa skapað,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár