Mussila hlýtur Norrænu EdTech verðlaunin

Sprota­fyrirtækið Mussila fram­leiðir hugbúnað sem kennir börnum tónlist í gegnum skapandi umhverfi.

Íslenska tölvuleikja­fyrirtækið Mussila fékk í dag Norrænu fræðslu- og tækni­verðlaunin (EdTech) sem voru afhent í Helsinki í Finnlandi.

Mussila kennir börnum tónlist og nýtur alþjóðlegra vinsælda hjá börnum, foreldrum og kennurum. „Börnin læra í gegnum leik að þekkja fjölda hljóðfæra, lesa nótur og spila lög. Smáforritið fylgir mark­vissri náms­áætlun og geta foreldrar fylgst með árangri barnanna jafnt og þétt,“ segir í tilkynningu.

Leikurinn var fyrst gefinn út fyrir tveimur árum og hefur vaxið og tekið miklum breytingum frá þeim tíma.

Margrét Júlíana Sigurðar­dóttir framkvæmda­stjóri Mussila kynnti stefnu og sýn Mussila. Fyrirtæki frá Norður­löndunum kynntu m.a. vélmenni sem kenna börnum tungumál, vettvang fyrir kennara til að fylgjast með árangri nemanda og sýndurveruleikalausnir í kennslu, svo fátt eitt sé nefnt.

Fyrir tveimur mánuðum hlaut Mussila foreldra­verðlaunin í Banda­ríkjunum sem besta appið fyrir börn og nú á dögunum var Mussila einnig tilnefnt sem Global Finalist á Bett verð­laununum í London sem fer fram í London í janúar 2020. Alls eru sex starfs­menn starfandi hjá Mussila og eru þau öll stödd í Helsinki, þar sem verð­launin voru afhent.

„Þessi verðlaun eru bara stórkostleg viðurkenning fyrir okkur í Mussila. Við erum með hvílíkt ofurteymi sem hefur af miklum metnaði unnið að Mussila Music School - til að gera hann að þeirri vöru sem hann er í dag. Tónlistarnám er gríðar­lega mikilvæg námsgrein sem hefur víðtæka skírskotun og eflir í raun árangur barna í flestum öðrum fögum. Með þessu erum við að leggja okkar af mörkum til að gera tónlistarmám aðgengilegt öllum börnum,“ segir Margrét Júlíana Sigurðar­dóttir, framkvæmda­stjóri Mussila. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár