Tuttugu og átta útgáfufélög sækjast eftir opinberum rekstrarstuðningi

Alls sækjast 28 félög eftir því að fá stuðning frá hinu opinbera vegna reksturs einka­rekinna fjölmiðla í ár. Nítján fengu slíka styrki í fyrra, en 384 milljónir verða til úthlutunar í ár.

Hópur fréttamanna og ljósmyndara á Bessastöðum fyrir nokkrum árum síðan.
Hópur frétta­manna og ljós­mynd­ara á Bessa­stöðum fyrir nokkrum árum síðan. Mynd: Úr safni

Fjölmiðla­nefnd bárust alls 28 umsóknir um rekstrar­stuðning til einka­rekinna fjölmiðla fyrir árið 2022, en umsóknar­frestur rann út á þriðjudaginn, 2. ágúst. Alls verða 384,3 milljónir króna til úthlutunar, að frádreginni þóknun fyrir störf nefndar sem sér um úthlutun stuðningsins og öðrum kostnaði við umsýsluna.

Á síðasta ári fengu 19 fjöl­miðlar rekstrar­stuðning úr ríkis­sjóði, en alls 23 fyrirtæki sóttu þá um styrkina.

Það eru því nokkur sem bætast við nú, en í svari frá Fjölmiðla­nefnd segir að ekki sé víst að allir umsækjendur uppfylli að öllu leyti þau skilyrði sem sett eru fyrir úthlutun í lögum um fjölmiðla, t.d. um fjölda starfs­manna, útgáfu­tíðni eða annað.

„Úthlutunar­nefnd leggur mat á það. Endanlegur fjöldi gildra umsókna liggur því ekki fyrir að svo stöddu,“ segir í svari frá Fjölmiðla­nefnd.

Öll nítján félögin sem fengu rekstrar­stuðning á síðasta ári sóttu á ný um styrki, en það eru Árvakur útgáfu­félag Morgun­blaðsins, Bænda­samtök Íslands sem gefa út Bænda­blaðið, Elísa Guðrún ehf. sem er útgáfu­félag Lifandi vísinda, Fótbolti.net, Fröken ehf. sem gefur út Grapevine, Kjarninn, Letur­stofan sem er útgáfu­félag Tíguls í Vestmanna­eyjum, MD Reykjavík ehf. sem er útgáfu­félag Iceland Review, Myllu­setur sem gefur út Viðskipta­blaðið, N4, Skessu­horn, Stein­prent ehf. sem gefur út bæjar­blaðið Jökul í Snæfellsbæ, Sýn hf. sem rekur Stöð 2, Vísi og fleiri fjölmiðla, Torg ehf. sem á Frétta­blaðið, DV og Hringbraut, Tunnan prent­þjónusta ehf. sem gefur út Helluna í Fjalla­byggð og DB blaðið í Dalvíkur­byggð, Útgáfu­félag Austur­lands sem gefur út Austur­frétt og Austur­gluggann, Útgáfu­félagið ehf. sem gefur út Viku­blaðið á Akureyri, Stundin og Víkur­fréttir í Reykja­nesbæ.

Að auki sækjast níu félög til viðbótar eftir rekstrar­stuðningi nú. Það eru Birtíngur, sem gefur m.a. út Vikuna og Hús og híbýli, Eyjasýn ehf. sem gefur út Eyja­fréttir, Hönnunar­húsið ehf. sem gefur út Fjarðar­fréttir í Hafnar­firði, Nordic Times Media ehf. sem gefur út Land og sögu, Icelandic Times og Nordic Times, Nýprent ehf. útgáfu­félag Feykis í Skaga­firði, Prentmet Oddi ehf. sem er útgefandi Dagskrárinnar á Suður­landi, Útvarp Saga, Snasabrún ehf., sem er útgáfu­félag handbolta­vefmiðilsins handbolti.is og Sólartún ehf. sem rekur Mannlíf.

Heildarupphæð umsókna liggur ekki fyrir

Samkvæmt svari frá Fjölmiðla­nefnd er vinna við yfirferð og skjölun umsókna að hefjast á skrif­stofu stofnunarinnar og liggur heildar­upphæð styrk­umsókna því ekki ennþá fyrir, en fyrsti fundur úthlutunar­nefndar eftir að umsóknar­fresturinn rann út fer fram næsta þriðjudag.

Samkvæmt lögum um fjölmiðla getur rekstrar­stuðningur að hámarki orðið 25 prósent af stuðnings­hæfum rekstrar­kostnaði útgefanda. Sá kostnaður sem er stuðnings­hæfur er beinn launa­kostnaður starfs­manna á ritstjórn fjölmiðla og beinar verktaka­greiðslur til þeirra aðila sem ráðnir eru til þess að afla og miðla fréttum, frétta­tengdu efni og umfjöllun um samfélagsleg málefni.

Í fyrra var tveimur umsóknum synjað og tveimur vísað frá, þar sem þær bárust of seint inn til Fjölmiðla­nefndar. Stærstu einka­reknu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, Árvak­ur, Sýn og Torg, fengu hvert um sig rúm­lega 81,4 millj­ónir króna í opin­beran rekstr­ar­stuðn­ing í fyrra, eða alls rúmar 244 milljónir af þeim tæpu 389 milljónum sem voru til úthlutunar þá.

Þessir fjölmiðlar/fjölmiðlaveitur hafa sótt um rekstrarstuðning:

  • Árvakur hf.
  • Birtíngur útgáfu­félag ehf.
  • Bænda­samtök Íslands
  • Elísa Guðrún ehf.
  • Eyjasýn ehf.
  • Fótbolti ehf.
  • Fröken ehf.
  • Hönnunar­húsið ehf.
  • Kjarninn miðlar ehf.
  • Letur­stofan Vestmanna­eyjum ehf.
  • MD Reykjavík ehf.
  • Myllu­setur ehf.
  • N4 ehf.
  • Nordic Times Media ehf.
  • Nýprent ehf.
  • Prentmet Oddi ehf.
  • SagaNet - Útvarp Saga ehf.
  • Skessu­horn ehf.
  • Snasabrún ehf.
  • Sólartún ehf.
  • Stein­prent ehf.
  • Sýn hf.
  • Torg ehf.
  • Tunnan prent­þjónusta ehf.
  • Útgáfu­félag Austur­lands ehf.
  • Útgáfu­félagið ehf.
  • Útgáfu­félagið Stundin ehf.
  • Víkur­fréttir ehf.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár