HSBC fækkar um átta þúsund starfsmenn í Bretlandi

Stjórn HSBC hefur ákveðið að draga saman seglin í Bretlandi, vegna versnandi afkomu, og fækka um átta þúsund starfs­mönnum af þeim 48 þúsund sem starfa fyrir bankann á þessu mikil­vægasta einstaka markaðs­svæði hans.

Frá þessu er greint á vefsíðu breska ríkis­útvarpsins BBC. Stuart Gulliver, forstjóri bankans, segir í að þetta verði gert að mestu í gegnum starfsmanna­veltuna í bankanum, en á heimsvísu verður starfs­mönnum fækkað um 25 þúsund, eða nærri tíu prósent af heildar­fjölda starfs­manna bankans og dóttur­félaga. Hjá bankanum og dóttur­félögum starfa samtals 266 þúsund manns, og er fyrir­tækið eitt stærsta fyrirtæki Bretlands.

Þessar aðgerðir eru hluti af tíu ára skipulagi og stefnu bankans, en alþjóðleg fjár­festinga­banka­starfsemi á í vök að verjast þessa dagana, að því er fram kemur í umfjöllun BBC. Ástæðan er meðal annars breytt laga­umhverfi frá því fyrir hremmingarnar á fjármála­markaði, árin 2007 til 2009, og einnig breytt landslag í alþjóð­legum fjár­festingum, en mun meiri áhersla er nú á fjár­mögnun verkefna í Asíu en áður var. Þetta er meðal þess sem stjórn HSBC horfir til, þar sem starfsemi bankans í Kína á að aukast.

Vonir standa til þess að bankinn dragi úr kostnaði upp á fimm milljarða Band­ríkjadala, eða sem nemur 650 milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár