Segist hafa komið að tómu borði hvað varðar sjómannaverkfallið

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, segir að það hefði verið æski­legt fyrir hana að koma ekki að „tómu borði“ í ráðu­neyti sínu hvað varðar deilu sjó­manna og útgerð­ar­manna. Verkfall sjó­manna sé eldra en rík­is­stjórnin sem hún sitji í. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Þor­gerðar á Facebook.

Í Morg­un­blað­inu í morgun birt­ist for­síðu­frétt þar sem sagði að ákveð­innar gremju og óþreyju gætti í röðum útgerð­ar­manna í garð Þor­gerðar og Bene­dikts Jóhann­es­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, vegna „and­vara­leysis ráð­herr­anna gagn­vart verk­falli sjó­manna“. Morg­un­blaðið hafði eftir ónafn­greindum útgerð­ar­mönnum að stjórn­völd „réðu yfir ákveðnum tækjum til þess að höggva á hnúta“. Blaðið sagð­ist enn fremur hafa heim­ildir fyrir því að óþreyju gætti innan þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks vegna máls­ins. Þá gagn­rýndi Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, það að rík­is­stjórnin væri að láta reka á reið­anum þegar helsta atvinnu­grein lands­manna væri í lama­sessi. Félög tengd sjáv­ar­út­vegi eiga 96 pró­sent hlut í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins.

Þor­gerður seg­ist skilja vel að þrýst­ingur skap­ist á stjórn­völd til að grípa inn í deilu útgerð­ar­manna og sjó­manna, sem hefur staðið yfir frá miðjum des­em­ber­mán­uði. „Sá þrýst­ingur ein­skorð­ast ekki við ein­staka hópa eða þing­flokka, enda hefur verk­fallið áhrif á sam­fé­lagið allt og langt út fyrir land­stein­ana. Aðal þrýst­ing­ur­inn er hins­vegar á deilu­að­ila að ná samn­ingum. Stjórn­völd eiga að fylgj­ast vel með á meðan, greina þjóð­hags­leg áhrif verk­falls­ins og und­ir­búa ólíkar sviðs­myndir. Sú vinna er nú í fullum gangi í ráðu­neyt­unum.

Ég neita því hins­vegar ekki að æski­legt hefði verið að koma ekki að tómu borði hvað þetta ærna verk­efni varðar, en verk­fallið er auð­vitað eldra en rík­is­stjórnin sjálf.

Eftir stendur að lausnin liggur hjá samn­ings­að­ilum sem ég treysti fylli­lega að finna þá lausn sem skyn­söm er fyrir sjó­menn, útgerðir og þar með sam­fé­lagið allt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár