Eigandi Morgunblaðsins tapaði 160 milljónum í fyrra

Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, hefur tapað tæpum 1,5 millj­arði króna frá 2009. Skuldir félags­ins hafa verið færðar niður um 4,5 millj­arða á sama tíma. Félög úr sjáv­ar­út­vegi eiga tæp 96 pró­senta hlut. Þau hafa sett 1,2 millj­arða í rekst­ur­inn.

Davíð Oddsson tók við ritstjórastarfinu á Morgunblaðinu haustið 2009 ásamt Haraldi Jóhannessen. Því hefur hann gengt sleitlaust síðan að undanskildu því að Davíð tók sér leyfi til að bjóða sig fram til forseta. Þar hlaut hann 13,7 prósent atkvæða.
Davíð Oddsson tók við rit­stjóra­starf­inu á Morg­un­blað­inu haustið 2009 ásamt Haraldi Jóhann­es­sen. Því hefur hann gengt sleit­laust síðan að und­an­skildu því að Davíð tók sér leyfi til að bjóða sig fram til for­seta. Þar hlaut hann 13,7 pró­sent atkvæða. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þórsmörk ehf., eig­andi Árvakurs, tap­aði 160 millj­ónum króna á árinu 2015. Allt tapið, og rúm­lega það, er vegna hlut­deildar Þórs­merkur í tapi dótt­ur­fé­laga sinna, Árvakurs, sem gefur út Morg­un­blaðið og rekur mbl.is, og Lands­prents, sem rekur prent­smiðju. Sam­an­lagt töp­uðu dótt­ur­fé­lögin 163 millj­ónum króna á árinu 2015. Það er tæp­lega fjórum sinnum meira tap þeirra á árinu 2014, þegar Árvakur og Lands­prent töp­uðu sam­tals 42 millj­ónum króna. Þá var allt það tap vegna rekstur Árvakurs. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Þórs­merkur fyrir árið 2015, sem skilað var inn til árs­reikn­inga­skráar í júní.

Árvakur hefur tapað umtals­verðum fjár­hæðum á und­an­förnum árum. Rekstr­ar­tap félags­ins var 667 millj­ónir króna árið 2009. Árið eftir tap­aði það 330 millj­ónum króna alls og árið 2011 nam tapið 205 millj­ónum króna. Tapið 2012 var 47 millj­ónir króna. Árið 2013 skil­aði Árvakur sex millj­óna króna hagn­aði en 2014 var rekst­ur­inn aftur kom­inn öfugu megin við núllið. Þá tap­aði félagið 42 millj­ónum króna.

Ef tap Þórs­merkur í fyrra er allt vegna tap­rekst­urs á fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu Árvakri, líkt og verið hefur árin á undan, þá nemur tap Árvakurs frá 2009, þegar uppi­staðan í núver­andi eig­enda­hópi eign­að­ist félagið, og til loka síð­asta árs verið tæp­lega 1,5 millj­arðar króna.

Félög með tengsl við útveg eiga 96 prósent

Þórsmörk ehf. er að lang­mestu leyti í eigu félaga sem tengj­ast stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum lands­ins.

Á meðal þeirra sem stýra félögum sem eiga hlut er Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja (18,43 pró­sent), Sigurjón Rafnsson, aðstoð­ar­kaup­fé­lags­stjóri Kaup­fé­lags Skag­firð­inga (9,10 pró­sent. Félagið sem hann stýrir er síðan að fullu í eigu Kaup­fé­lags­ins), Katrín Pét­urs­dóttir, for­stjóri Lýsis (1,97 pró­sent), Gunnþór Ingv­ars­son, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar, (6,14 pró­sent) Ólafur Mart­eins­son, for­stjóri Ramma (6,14 pró­sent), Einar Valur Krist­jáns­son, for­stjóri hrað­frysti­húss­ins Gunn­varar (1,72 pró­sent), Aðal­steinn Ing­ólfs­son, for­stjóri Skinney-Þinganes (4,10 pró­sent) og dán­arbú Páls Hreins Páls­sonar, stofn­anda Vísis og föður þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins Páls Jóhanns Páls­sonar (2,05 pró­sent). Samtals eiga þessir aðilar 49,65 pró­sent hlut í Þórsmörk, og þar með Árvakri.

Stærsta hlut­inn í Þórsmörk og Árvakri, og þar af leið­andi í Morg­un­blað­inu, eiga hins vegar félög tengd Ísfélagi Vest­manna­eyja. Hlynur A ehf., einka­hluta­fé­lag Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur, aðal­eig­anda Ísfé­lags­ins og á 16,38 pró­sent hlut, Ísfé­lagið á beint 13,34 pró­sent hlut. Auk þess keypti félag sem heitir Legalis 12,37 pró­sent hlut Óskars Magn­ús­sonar, sem leiddi kaupin á Árvakri árið 2009 og starf­aði sem útgef­andi félags­ins árum sam­an, í fyrra. Sig­ur­björn Magn­ús­son veitir því félagi for­stöðu en eig­endur þess eru sagðir hann, Gunn­laugur Sævar Gunn­laugs­son og Hanna Ólafs­dóttir. Gunn­laugur Sævar er stjórn­ar­for­maður Ísfélags Vest­manna­eyja og Sig­ur­björn situr í stjórn þess. Sam­an­lagt eiga því aðilar með bein tengsl við Ísfélag Vest­mann­ey­inga 42,09 pró­sent hlut.

Stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins eiga því 91,74 pró­sent í Þórsmörk og Árvakri. Þegar við bæt­ist hlutur sem Hall­dór Krist­jáns­son, tengda­sonur fyrrum eig­enda Stál­skipa, fer þetta hlut­fall þeirra sem eru með sterka sjáv­ar­út­vegsteng­ingu upp í 95,84 pró­sent.

Flestir for­svars­menn félag­anna hitt­ast víðar en á hlut­hafa­fundum Árvak­urs. Þeir sitja nær allir í stjórn Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), sem áður hét Lands­sam­band íslenskra útgerð­ar­manna (LÍÚ).

Aðrir eig­endur eru Þor­geir Bald­urs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Odda (0,08 pró­sent), Jón Pálma­son, sem á m.a. Ikea á Íslandi ásamt bróður sínum (2,05 pró­sent) og er bróðir Ingi­bjargar Pálma­dótt­ur, aðal­eig­anda 365 miðla, og Ásgeir Bolli Krist­ins­son, fjár­festir sem oft­ast hefur verið kenndur við tísku­vöru­versl­un­ina Sautján (2,05 pró­sent).

Því er ljóst að stórir hags­muna­að­ilar í íslensku sam­fé­lagi halda um alla þræði í félag­inu sem á Morg­un­blaðið. Fyrir utan hina mjög sýni­legu teng­ingu við sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins nær það net víðar. Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, sem á 9,1 pró­sent hlut í Þórsmörk, á til að mynda hlut í Mjólk­ur­sam­söl­unni. Félög tengd Guð­björgu Matth­í­as­dóttur eiga eitt stærsta heild­sölu­fyr­ir­tæki lands­ins, Íslensk Ameríska. Þá eiga félög tengd Samherja m.a. stóran hlut í Olís.

Í umboði Þórs­merkur sitja fimm manns í stjórn Árvakurs. Sig­ur­björn Magn­ús­son er stjórn­ar­for­maður en auk hans sitja þar Ásdís Halla Braga­dóttir (fyrrum bæj­ar­stjóri Garða­bæjar fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins og einn aðal­eig­anda heima­þjón­ust­unnar Sinn­um), Bjarni Þórður Bjarna­son (fram­kvæmda­stjóri Arct­ica Fin­ance), Katrín Pét­urs­dóttir (for­stjóri Lýs­is) og Frið­björn Orri Ket­ils­son (fyrrum rit­stjóri og ábyrgð­ar­maður vefs­ins amx.is, sem hætti starf­semi 1. októ­ber 2013).

Grundvöllurinn viðskiptalegs eðlis

Uppi­staðan í þessum hópi hefur átt ráð­andi hlut í Morg­un­blað­inu frá því í febr­úar 2009. Þá var til­kynnt að hópur undir for­ystu Óskars Magn­ús­sonar hefði stofnað félagið Þórs­mörk ehf., sem myndi eign­ast Árvakur með yfir­töku skulda og nýju hluta­fé.

Óskar sagði við Morg­un­blaðið að þessu til­efni að mark­miðið með kaup­unum væri „fyrst og fremst það að reka góð­an, traustan og trú­verð­ugan fjöl­miðil sem Morg­un­blaðið hefur verið og koma honum upp úr því fari sem hann hefur verið í að und­an­förn­u[...]Við teljum að það megi gera úr þessu góðan og arð­væn­legan rekst­ur. Það er aðal­mark­mið þeirra fjár­festa sem hafa komið til liðs við mig í þessu verk­efni til þessa. Svo eru sjálf­sagt mis­mun­andi ástæður hjá hverjum og ein­um. Eflaust bera allir ein­hverjar til­finn­ingar til Morg­un­blaðs­ins, hafa áhuga á þessu merka fyr­ir­bæri í íslenskri fjöl­miðla­sögu og vilja af ýmsum ástæðum að það blað verði gefið út áfram. Grund­völl­ur­inn er samt sem áður við­skipta­legs eðl­is“.

Kaup­verðið ekki gefið upp

Til að eign­ast Árvakur þurfti ekki að borga Íslands­banka neitt. Það þurfti ein­fald­lega að yfir­taka ein­hverjar skuldir og leggja til nýtt hluta­fé. Sam­kvæmt til­kynn­ingu Íslands­banka um málið kom fram að um 200 millj­ónum króna hefði munað á til­boði Þórs­merkur og næst­hæsta til­boð­inu, sem var frá félagi í eigu Steve Cosser og við­skipta­fé­laga hans Ever­hard Viss­er. Kaup­verðið var hins vegar ekki gefið upp.

Nýir eig­endur réð­ust ekki í neinar sér­stakar breyt­ingar inn­an­húss fyrst um sinn. Ólafur Steph­en­sen, sem hafði verið ráð­inn rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins sum­arið 2007, hélt stóli sínum og engar stór­vægi­legar upp­sagnir voru boð­að­ar. Það breytt­ist allt um miðjan sept­em­ber þegar Ólafi var sagt upp störf­um. Ólaf­ur, sem er yfir­lýstur Evr­ópu­sam­bands­sinni, hafði haldið á lofti stefnu í þeim mála­flokki sem var nýjum eig­endum ekki að skapi. Auk þess voru þeir ekki ánægðir með afstöðu sem birt­ist í rit­stjórn­ar­skrifum blaðs­ins í Ices­a­ve-­mál­inu, sem þá var farið að taka á sig býsna hat­ramma mynd. Í þeim skrifum hafði samn­inga­leið verið gert hátt undir höfði. Ítrekað hafði verið þrýst á Ólaf að skipta um kúrs í þessum mál­um, en hann hafði ávallt neit­að.

Í stað Ólafs voru tveir nýir rit­stjórar ráðn­ir. Þeir voru Har­aldur Johann­essen, fyrrum rit­stjóri Við­skipta­blaðs­ins, og Davíð Odds­son, fyrrum for­sæt­is­ráð­herra, seðla­banka­stjóri og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Haraldur er auk þess í dag fram­kvæmda­stjóri bæði Þórs­merkur og Árvakurs.

Skýr stefnubreyting með nýjum ritstjórum

Með ráðn­ingu þeirra Dav­íðs og Har­aldar voru send skýr skila­boð um breytta stefnu blaðs­ins. Sú stefna hefur alla tíð síðan ein­kennst af nokkrum ráð­andi þátt­um: And­stöðu við vinstri­st­jórn­ina sem sat frá 2009 - 2013, Evr­ópu­sam­band­ið, Ices­a­ve-­samn­ing­anna, breyt­ingar á stjórn­ar­skrá, RÚV og við breyt­ingar á kvóta­kerf­inu og aukna gjald­töku á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki. Það má með nokk­urri vissu segja að hörð and­staða Morg­un­blaðs­ins og skoð­ana­systk­ina þess hafi borið mik­inn árangur. Vinstri­st­jórnin hrökkl­að­ist frá sem ein óvin­sælasta rík­is­stjórn sög­unnar, Evr­ópu­sam­bands­að­ild hefur verið lögð á hill­una, Icesave-samn­ing­arnir fóru í þjóð­ar­at­kvæði og fyrir dóm­stóla, komið hefur verið í veg fyrir allar breyt­ingar á stjórn­ar­skrá, RÚV hefur verið fjársvelt og undið hefur verið ofan af álagn­ingu veiði­gjalda með þeim hætti að þau eru nú ein­ungis brota­brot af því sem þau áttu að vera.

Á und­an­förnum miss­erum hefur bæst við mjög sterkur stuðn­ingur við Sigmund Davíð Gunn­laugs­sonar, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og þá skýr­ingu að hann hafi verið leiddur í gildru eða orðið fyrir árás þegar hann sagði ósatt um aflands­fé­lag sitt í sjón­varps­við­tali snemma í apríl síð­ast­liðnum. Blaðið beitti sér einnig mjög í síð­ustu for­seta­kosn­ingum, sér­stak­lega í gagn­rýni á fram­bjóð­and­ann Guðna Th. Jóhann­es­son og í stuðn­ingi við Davíð Oddsson, rit­stjóra þess, sem var í fram­boði. Þessi stefna birt­ist sér­stak­lega í rit­stjórn­ar­greinum Morg­un­blaðs­ins. Síðustu vik­urnar hefur meg­in­þema þeirra skrifa verið að tala fyrir því að hætt verði við kosn­ingar í haust.

Hafa sett 1,2 milljarða inn í félagið

Líkt og áður sagði var kaup­verðið á Árvakri aldrei gefið upp. Hlutafé Þórs­merkur í félag­inu var hins vegar metið á 300 millj­ónir króna í árs­reikn­ingi félags­ins fyrir árið 2009. Því verður að telj­ast lík­legt að það sé sú upp­hæð sem greidd hafi verið fyrir það. Til við­bótar settu nýir eig­endur Árvak­urs strax 150 millj­ónir króna inn í rekst­ur­inn á árinu 2009. Alls greiddu þeir 650 millj­ónir króna í hlutafé inn í Þórs­mörk, svo ljóst var að þeir ætl­uðu sér að hafa borð fyrir báru. Í lok árs 2009 voru enn rúm­lega 200 millj­ónir króna til að draga á frá eig­end­un­um.

Ekki leið á löngu þar til að það fé var uppurið og hlut­haf­arnir greiddu 540 millj­ónir króna í nýtt hlutafé inn í Árvakur árið 2012. Skömmu áður hafði Árvakur farið í gegnum fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu, númer tvö frá árinu 2009, á árinu 2011. Þá afskrif­aði við­skipta­banki þess um einn millj­arð króna af skuldum þess og gerði Árvakur að frekar skuld­léttu félagi. Sam­an­lagt hafði því um 4,5 millj­arðar króna af skuldum félags­ins verið afskrif­að­ar.

Kjarn­inn hefur árs­reikn­ing Þórs­merkur vegna árs­ins 2015 undir hönd­um. Þar kemur fram að eig­endur félags­ins hafi alls sett 1.221 millj­ónir króna inn í Þórs­mörk, en eina eign félags­ins er Árvakur og Lands­prent, félag utan um rekstur prent­smiðju félags­ins. Þar kemur einnig fram að kröfur á tengd félög, sem eru ofan­greind, hafi vaxið um 35 millj­ónir króna í fyrra og að eft­ir­stand­andi hand­bært fé Þórs­merkur sé 66 millj­ónir króna.

Raunar er tap­rekstur eitt­hvað sem eig­endur Þórs­merkur/Árvak­urs eru orðnir býsna van­ir. Rekstr­ar­tap félags­ins var 667 millj­ónir króna árið 2009. Árið eftir tap­aði það 330 millj­ónum króna alls og árið 2011 nam tapið 205 millj­ónum króna. Tapið 2012 var 47 millj­ónir króna. Árið 2013 skil­aði Árvakur sex millj­óna króna hagn­aði en 2014 var rekst­ur­inn aftur kom­inn öfugu megin við núllið. Þá tap­aði félagið 42 millj­ónum króna. Miðað við það sem kemur fram í árs­reikn­ingi Þórs­merkur um hlut­deild þess í tapi einu dótt­ur­fé­laga sinna, Árvakurs og Lands­prents, þá hefur tapið verið um 163 millj­ónir króna í fyrra.

Sam­tals nemur tap Árvak­urs á tíma­bil­inu 2009 til loka árs 2015, eða þann tíma sem uppi­staðan í núver­andi eig­enda­hópi hefur átt félag­ið, því 1.448 millj­ónum króna króna.

Skuldir Árvak­urs hafa lækkað umtals­vert und­an­farin ár, sér­stak­lega vegna skulda­nið­ur­fell­inga við­skipta­banka félags­ins, og voru um 1,1 millj­arður króna í lok árs 2014. Lang­tíma­skuldir hafa einnig minnkað hratt og voru um 536 millj­ónir króna. Árs­reikn­ingi Árvakurs fyrir 2015 hefur ekki verið skilað inn til árs­reikn­inga­skráar og því er liggja ekki fyrir upp­lýs­ingar um upp­færða skulda­stöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár