Stjórnvöld nýti ástandið til að lauma bitlingum til ríkasta fólksins

Forseti ASÍ gefur ekki mikið fyrir aðgerðir stjórn­valda um að hækka frí­tekju­mark fjár­magnstekna úr 150 þús­und í 300 þús­und krónur. „Það er jóla­gjöfin í ár,“ segir hún.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

„Þessar áherslur stjórn­valda vekja ekki vonir um að við komumst út úr krepp­unni með jafn­ara og sann­gjarn­ara sam­fé­lag. Þvert á móti á að nýta ástandið til að lauma bit­lingum til rík­asta fólks­ins, það er jóla­gjöfin í ár.“

Þetta skrifar Drífa Snædal, for­seti ASÍ, í viku­legum pistli sínum í dag sem hún nefnir „Millj­arða jóla­gjöf til hinna rík­ustu“.

„Það er handa­gangur í öskj­unni á Alþingi rétt fyrir jól og mögu­leikar almenn­ings, til að greina ákvarð­anir og veita aðhald, taka­mark­aðir. Nú stendur fyrir dyrum að létta skatt­byrði á þeim allra rík­ustu í sam­fé­lag­inu með því að hækka frí­tekju­mark fjár­magnstekna úr 150 þús­und í 300 þús­und og láta það ná til arð­greiðslna og sölu­hagn­aðs. Aðgerð sem kostar rík­is­sjóð um millj­arð á ári á sama tíma og Land­spít­al­inn þarf að hag­ræða um 4 millj­arða,“ skrifar hún.

Setur Drífa þessa aðgerð í sam­hengi við bar­átt­una um að ná fram skatta­lækk­unum á þá allra tekju­lægstu í sam­fé­lag­inu sam­hliða lífs­kjara­samn­ingum. „Sú skatta­lækkun var knúin fram í krafti kjara­við­ræðna og var hluti af kjara­bótum almenn­ings. Samn­inga­við­ræður áttu sér stað og Alþýðu­sam­bandið lagði fram gögn sem sýndu að skatt­byrði hefði auk­ist á þá sem lægst hafa launin. Það þurfti mikið afl til að breyta skatt­kerf­inu og það var gert til að auka jöfnuð.“

Hún segir að nú þegar rík­is­stjórnin vilji létta sköttum á þeim allra rík­ustu og þar með veikja tekju­stofna rík­is­ins sé ekk­ert sam­ráð og afar veikur rök­stuðn­ingur en jóla­gjöfin þeim mun veg­legri.

Ríkasta fólk landsins þarf ekki að greiða útsvar til sveitarfélaga þótt þau nýti þjónustu þeirra

„Í því sam­bandi má nefna að núver­andi frí­tekju­mark fjár­magnstekna nýt­ist 90 pró­sent fram­telj­enda. Aðgerðin nýt­ist því 10 pró­sent tekju­hæstu fram­telj­end­unum best. Horfið er af braut jöfn­uðar og ekk­ert sem styður þennan gjörn­ing á tímum þegar rík­is­sjóður hefur sann­an­lega ekki efni á að minnka tekjur sínar nema fyrir því séu afar góð rök. Nær væri að efla tekju­öflun rík­is­ins en með því að veikja tekju­stofna sína er ríkið líka að rýra tekjur sveit­ar­fé­laga. Fleiri munu falla út af atvinnu­leys­is­bótum og þurfa að treysta á fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­lag­anna auk þess sem þau hafa ríkar skyldur að halda uppi vel­ferð á kreppu­tímum.

Á meðan þarf rík­asta fólk lands­ins, þau sem fá tekjur sínar af pen­ingum og fjár­mála­gjörn­ingum, ekki að greiða útsvar til sveit­ar­fé­laga þótt þau nýti þjón­ustu þeirra á við alla aðra, hvort sem litið er til snjó­mokst­urs eða leik- og grunn­skóla,“ skrifar Drífa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár