Fá rök sett fram til réttlætingar á margmilljarða skattaendurgreiðslum

Óljós ávinn­ingur af auk­inni inn­heimtu tekju­skatts eru helstu rökin sem lögð hafa verið fram af hálfu þeirra stjórn­mála­manna sem lögðu til og sam­þykktu að verja millj­örðum króna í að end­ur­greiða virð­is­auka­skatt af vinnu manna fram eftir ári.

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar og þing­maður Vinstri grænna, segir í skrif­legu svari til Kjarnans að fjöl­margir sem komið hafi fyrir fjár­laga­nefnd Alþingis hafi lagt „mikla áherslu“ á að úrræðið Allir vinna yrði fram­lengt, þar sem það hefði reynst vel.

Við fjár­laga­vinn­una sem fram fór á Alþingi í des­em­ber var ákveðið að fram­lengja úrræðið í tak­mark­aðri mynd út ágúst­mánuð. Áfram verður þannig hægt að fá allan virð­is­auka­skatt vegna vinnu iðn­aðar- og verka­manna við nýbygg­ingu, við­hald og end­ur­bætur íbúð­ar­hús­næðis end­ur­greiddan.

Í upp­haf­legu fjár­laga­frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar var gert ráð fyrir að þessar end­ur­greiðslur tak­markast við 60 pró­sent frá ára­mótum, eins og var fyrir kór­ónu­veiru­far­ald­urnn, en það breytt­ist í með­förum þings­ins. Einnig var ákveðið að áfram yrði hægt að fá fulla end­ur­greiðslu á virð­is­auka­skatti vegna vinnu við hönnun og eft­ir­lit íbúðar- og frí­stunda­hús­næðis, nýbygg­ingar og við­hald frí­stunda­hús­næðis og annað hús­næði sveit­ar­fé­laga fram til 30. júní, en að þeim tíma liðnum falla þær end­ur­greiðslur alveg niður.

Áætlaður tekju­missir rík­is­sjóðs vegna þess­ara breyt­inga nemur 7,2 millj­örðum króna á árinu 2022. Til þess að setja þá tölu í sam­hengi, þá er það sam­bæri­leg upp­hæð og áætlað er að verja til bygg­ingar nýs Land­spít­ala á árinu.

Jákvæð áhrif á hagkerfið

Í svari sínu við fyr­ir­spurn Kjarnans seg­ist Bjarkey álíta nið­ur­stöð­una sem ákveðna milli­leið á milli ólíkra sjón­ar­miða. Hún segir skiptar skoð­anir hafa verið um málið og að sumir hafi ekki viljað sjá neina fram­leng­ingu á úrræð­inu, sem komið var á til þess að mæta efna­hags­legum áhrifum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Aðrir hafi viljað fram­lengja það út árið 2022 í óbreyttri mynd.

„Gera má ráð fyrir því að þetta hafi jákvæð áhrif á hag­kerfið og mik­il­vægt að hafa í huga að fjár­mála­ráðu­neytið reiknar ekki inn þær tekjur sem skap­ast á móti m.a. í auknum inn­heimtum tekju­skatti,“ segir Bjarkey í svari til Kjarnans, en vert er að taka fram að óljóst er hversu miklar auka­tekjur skap­ast vegna auk­innar inn­heimtu tekju­skatts með því að end­ur­greiða virð­is­auka­skatt af útseldri vinnu að fullu.

Spurð nánar um það á hverju hún byggi það að gera megi ráð fyrir jákvæðum áhrifum á hag­kerfið með þess­ari ráð­stöfun segir Bjarkey að reynslan hafi sýnt að „end­ur­greiðslan á virð­is­auka­skatti jókst tölu­vert enda eins og við vitum þá var t.d. palla­efni og margt fleira tengt bygg­ing­ar­iðn­að­inum ill fáan­legt og virt­ist þetta einnig hvetja til almenns við­halds.“

Fjármálaráðuneytið mælti eindregið gegn framlengingu

Fram­leng­ing verk­efn­is­ins var nokkuð umdeild inni á þingi í fjár­laga­vinn­unni sem fram í síð­ari hluta des­em­ber. Hafa stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn sumir hverjir sagt þessa ráð­stöfun óskyn­sam­lega og í því sam­hengi helst vísað til minn­is­blaðs sem skatta­skrif­stofa fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins sendi til efna­hags- og við­skipta­nefndar um málið þann 16. des­em­ber.

[adspot]

Þar var mælst til þess á nokkuð ein­dreg­inn máta að fallið yrði að öllu leyti frá 100 pró­sent end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts af útseldri vinnu strax um ára­mótin. Meðal ann­ars var vísað til þess að um væri að ræða inn­spýt­ingu fjár­magns í þegar þanið hag­kerfi – en hag­spár bæði Seðla­banka og Hag­stof­unnar gera ráð fyrir því að fram­leiðslu­spenna mynd­ist í þjóð­ar­bú­inu á þessu ári. Auk þess benti fjár­mála­ráðu­neytið á að búist væri við vexti í íbúða­fjár­fest­ingu.

„Þessar spár benda ekki til að þörf sé fyrir sér­stakan skatta­hvata í bygg­ing­ar­starf­semi. Varðandi end­ur­bætur og við­hald íbúð­ar­hús­næðis þá bendir fátt til verk­efna­skorts. Sú hæfni sem þarf til þeirra verk­efna nýt­ist einnig við bygg­ingu nýs íbúð­ar­hús­næðis. Þá m á nefna að letj­andi áhrif Covid á ferða­lög til útlanda hafa að sama skapi haft hvetj­andi áhrif á sum­ar­bú­staða­fram­kvæmdir og þau áhrif eru ekki horfin. Auk þess bendir margt til þess að umfram­eft­ir­spurn sé eftir iðn­að­ar­mönnum og myndi áfram­hald­andi skatta­hvati fremur við­halda því ójafn­vægi en draga úr því,“ segir orð­rétt í minn­is­blað­inu frá ráðu­neyt­inu.

Engin rökstuðningur í nefndaráliti

Engan sér­stakan rök­stuðn­ing er að finna fyrir fram­leng­ingu úrræð­is­ins í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar, sem mælt­ist til þess í fjár­laga­vinn­unni að Allir vinna yrði fram­lengt og lagði fram breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­lögin þess efnis eftir að hafa fengið fjölda hags­mun­að­ila á sinn fund, meðal ann­ars fjóra hags­muna­verði frá Samtökum iðn­að­ar­ins, sem töl­uðu fyrir því að end­ur­greiðslum virð­is­auka­skatts yrði haldið áfram.

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans sagði svo ein­fald­lega að meiri­hlut­inn teldi „ekki tíma­bært“ að fella úrræðið með öllu niður, en frek­ari rök ekki færð fram fyrir því af hverju. Engin afstaða var tekin til áður­nefndra varn­að­ar­orða fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur þó bæði í ræðu­stól Alþingis og í pistli í Morg­un­blað­inu gert grein fyrir því af hverju henni þykir þetta skyn­sam­leg ráð­stöfun.

Á þingi nefndi hún, eftir að Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ingar gagn­rýndi að ekki hefði verið tekið frekara mið af inni­haldi minn­is­blaðs­ins frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu, að bygg­ing­ar­geir­inn hefði tekið á sig gríð­ar­legt högg eftir banka­hrunið og að úrræðið hefði spornað gegn svartri atvinnu­starf­semi. Ávinn­ing­ur­inn sagði Guðrún vera „óyggj­andi.“[links]

Þá sagði hún að „vita­skuld“ kæmu inn auknar tekjur í formi tekju­skatts á móti útgjöldum rík­is­ins vegna end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts­ins. Í minn­is­blaði fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins kemur þó fram að óvíst sé hvort það að hækka end­ur­greiðslur úr 60 pró­sentum upp í 100 pró­sent hafi ein­hver áhrif haft á hvata kaup­enda til að greiða fyrir vinnu sam­kvæmt reikn­ingi.

Nefndarmenn spurðir

Fáir þing­menn úr stjórn­ar­meiri­hlut­anum hafa mælt þess­ari ráð­stöfun bót opin­ber­lega og lék Kjarn­anum for­vitni á að vita hver afstaða ann­arra nefnd­ar­manna í meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar til máls­ins hefði verið og væri.

Einungis tveir af fjórum þing­mönnum sem skrif­aðir eru fyrir nefnd­ar­á­liti efna­hags- og við­skipta­nefndar ásamt for­mann­inum Guðrúnu brugð­ust við skrif­legri fyr­ir­spurn Kjarnans sem send var í upp­hafi vik­unnar.

Steinunn Þóra Árna­dóttir þing­maður Vinstri grænna sem situr í nefnd­inni segir í skrif­legu svari að hún hafi stutt breyt­ing­ar­til­lög­una, sem hafi verið milli­leið á milli ólíkra sjón­ar­miða sem komu fram í með­ferð þings­ins.

„Sumir umsagn­ar­að­ilar vildu hafa úrræðið óbreytt árið 2022 annað sjón­ar­mið var að það félli alveg niður. Þá er rétt að benda á að fyrir Covid hafði í mörg ár verið end­ur­greiðsla upp á 60%“ segir Steinunn Þóra.

[adspot]

Dilja Mist Ein­ars­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks svar­aði fyr­ir­spurn blaða­manns og benti ein­fald­lega á að rök­stuðn­ing meiri­hluta nefnd­ar­innar mætti finna í nefnd­ar­á­lit­inu, sem hún væri skrifuð fyrir.

Tveir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins í nefnd­inni, þau Ágúst Bjarni Garð­ars­son og Hafdís Hrönn Haf­steins­dóttir, höfðu ekki brugð­ist við spurn­ingu Kjarnans um þeirra afstöðu til máls­ins þegar fréttin fór í birt­ingu. Ágúst Bjarni svar­aði blaða­manni 24. jan­úar og sagð­ist hafa stutt málið, eins og nefnd­ar­á­lit meiri­hlut­ans ber með sér.

„Það voru vissu­lega ólík sjón­ar­mið til staðar en árið 2022 er ekki allt undir eins og þar fram kemur. Átakið er að mínu mati vel heppnað og þar sem við erum enn ekki komin út úr far­aldr­inum, þá tel ég mik­il­vægt að örva atvinnu­lífið, búa til störf og hvetja til fjár­fest­inga. Það skilar fjár­munum í rík­is­sjóð,“ segir Ágúst í skrif­legu svari til Kjarnans.

Óskað eftir svörum um hvert endurgreiðslurnar hafa farið

Kristrún Frosta­dóttir þing­maður Sam­fylk­ingar, sem gagn­rýndi ráð­stöf­un­ina og skort á rök­semda­færslu fyrir fram­leng­ingu úrræð­is­ins harð­lega í minni­hluta­á­liti sínu úr fjár­laga­nefnd, beindi fyrr í þess­ari viku fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og óskaði eftir upp­lýs­ingum um hvernig end­ur­greiðslur vegna Allir vinna skipt­ust eftir sveit­ar­fé­lögum, lög­að­ilum, ein­stak­lingum og tekju­tí­undum.

Auk þess spurði hún hvort farið hefði fram mat á áhrifum úrræð­is­ins á inn­heimtu tekju­skatts – og ef svo væri, hverju verk­efnið hefði skilað.

Fréttin var upp­færð 24. jan­úar með svörum sem bár­ust frá Ágúst Bjarna Garð­ars­syni þing­manni Fram­sóknar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár