Nýjar hagtölur staðfesta niðursveiflu í Kína

Nýjar hagtölur staðfesta að niður­sveifla, frá því sem verið hefur, er nú staðreynd í Kína. Útflutningur dróst saman um 5,5 prósent miðað við sama mánuð í fyrra sem þykir staðfesta minnkandi eftir­spurn í kínverska hagkerfinu, samkvæmt umfjöllun New York Times. Samtals hefur útflutningur dregist saman um 1,4 prósent, í Bandaríkja­dölum talið, á fyrstu átta mánuðum ársins.

Þetta þykja miklar og hraðar breytingar í þessu risavaxna hagkerfi og fjölmennasta ríki heims, með 1,4 milljarða íbúa af ríflega sjö milljörðum í heiminum eða sem nemur um tuttugu prósent af heildar­íbúafjölda á jörðinni.

Þá hafa innflutnings­tölur enn fremur sýnt minnkandi eftir­spurn, en yfir tíu mánaða tímabil hefur innflutningur dregist saman um fjórtán prósent.


#China's slowing growth! Both export and import growth have turned negative, with imports trailing exports. pic.twitter.com/SRkjvqOKIf


— jeroen blokland (@jsblokland) September 8, 2015

Þrátt fyrir merki um kínverska hagkerfið sé að hægja á sér töluvert hraðar en spár um sjö prósent hagvöxt á þessu ári gerðu ráð fyrir, voru umtals­verðar hækkanir á kínverska hlutabréfa­markaðnum í Shanghai í dag. Samtals lokuðu markaðir eftir 2,92 prósent dags­hækkun, en framan af degi stefndi í mikla lækkun. Undir lok dagsins hækkaði vísitalan hins vegar mikið, eftir töluvert mikil viðskipti undir lok dags.

Áhyggjur af stöðu mála í Kína, og þá einkum vegna minnkandi eftir­spurnar, hafa farið vaxandi að undan­förnu, en kínversk stjórn­völd ákváðu í síðasta mánuði að bregðast við stöðu mála með því að veikja gjald­miðilinn, júan, til þess að halda vöruskipta­jöfnuðu í ásættanlegu horfi og ýta undir samkeppnis­hæfni útflutnings­hliðar hagkerfisins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár