Samtökin '78 kalla eftir fjárstuðningi frá stjórnvöldum

Hilmar Hildarson Magnúsarson, formaður Samtak­anna '78, vill að stjórn­völd sýni stuðning sinn við samtökin í verki og styrki þau fjárhags­lega. Þetta kom fram í ræðu formannsins á aðalfundi samtak­anna, sem fram fór í gær.

Í ræðu sinni sagði Hilmar: „Starfs­fólk og sjálfboða­liðar hreyfingarinnar vinna í dag ómetanlegt og frábært starf við mjög krappann kost. Við finnum að almenningur og stjórn­völd gera mikla kröfu til okkar um þjónustu við og baráttu fyrir mann­réttindum hinsegin fólks. Þetta er mjög eðlileg krafa enda félagið eina stofnunin á Íslandi sem býr yfir víðtækri sérfræði­þekkingu í mála­flokknum, og heldur um leið úti jafn öflugri þjónustu, hvort sem varðar ráðgjöf, fræðslu, ungliða­starf, réttar­gæslu gagnvart löggjafa og framkvæmda­valdi og baráttu fyrir sýnileika, virðingu og viðurkenningu hinsegin fólks.

Hins vegar þarf hér að taka fram að félagið mun aldrei rísa undir þessu án þess að til komi fjármagn og það er bæði óraunhæft og ósann­gjarnt að ætlast til þess að jafn mikilvægt starf sé nær eingöngu sett á herðar sjálfboða­liða. Það er kominn tími til að stjórn­völd geri sér grein fyrir þessu og þar á ég bæði við um ríki og sveitar­félög. Stefna er einskis virði án fjármagns til framkvæmda. Svo einfalt er það. Fylgi fjármagn ekki með eru fögru loforðin lítið annað en orðin tóm. Við sjáum bæði ríki og sveitar­félög styðja ýmsa hópa og málefni um miklu stærri upphæðir en þau setja í mann­réttinda­baráttu hinsegin fólks. Framlög til okkar eru í raun hreinn brandari í saman­burðinum. Þetta snýst einfald­lega um það hvort stjórn­völdum sé raun­verulega alvara með fögrum orðum um stuðning við mann­réttindi hinsegin fólks og lífs­hamingju þess. Ég neita að trúa því að svo sé ekki - því þetta varðar okkur öll. En nú reynir á stóru orðin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár