Er Bandaríkjaher að koma aftur til Íslands?

Banda­rísk stjórn­völd hafa viðrað þá skoðun við íslensk yfir­völd að í ljósi breytts örygg­is­um­hverfis gæti verið ástæða fyrir Banda­ríkja­menn að auka við­veru banda­rísks liðsafla hér á landi. Engar við­ræður hafa þó átt sér stað milli ríkj­anna tveggja. Þetta kom fram í fréttum

RÚV

, en utan­rík­is­ráðu­neytið svar­aði fyr­ir­spurn RÚV um málið.







Bob Work skoðaði flugskýli


Er meðal ann­ars vitnað til fréttar sem Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi dóms- og kirkju­mála­ráð­herra, birti á vef Varð­bergs, þar sem vísað er í við­tal við Bob Work, vara­varn­ar­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, en við­talið við Work var á vefnum Defense Work í þess­ari viku. Í við­tal­inu kemur fram að Íslend­ingar hafi áhyggjur af fram­ferði Rússa, sem fljúgi nálægt íslenskri loft­helgi og að Ísland hafi áhuga á frek­ari og auk­inni sam­vinnu í varn­ar­málum við Banda­ríkja­menn.

Work skoð­aði á ferð sinni flug­skýli sem notuð voru fyrir P-3 Orion flug­vélar banda­ríska hers­ins á tímum kalda stríðs­ins í Keflavík.

Banda­ríski her­inn sá um öryggis-og varn­ar­mál á Íslandi ára­tugum saman í umboði NATO. Hann hvarf frá land­inu árið 2006, með litlum sem engum fyr­ir­vara, eftir 55 ára veru, en her­stöðin og aðstaða fyrir her­inn var á Mið­nes­heiði við Kefla­vík­ur­flug­völl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár