Fólk finnst í annarri vöruflutningabifreið í Austurríki - Börn í alvarlegu ástandi

Önnur vöru­flutninga­bifreið, þar sem flótta­fólk hélt til, hefur fundist í Austur­ríki og reyndust 26 einstaklingar halda til í bifreiðinni. Þrjú börn úr hópnum reyndust vera í alvarlegu ástandi og voru þau fluttu með hraði á sjúkrahús.

Bifreiðin fannst skammt frá Braunau og var rúmenskur bílstjóri hand­tekinn, að því er segir í frétt breska ríkis­útvarpsins BBC.

Þetta er í annað skipti á skömmum tíma sem flótta­fólk finnst í vöru­flutninga­bifreið í Austur­ríki. Í síðustu viku fannst bifreið með 71 líki innanborðs, og er talið að allir hinir látnu hafi verið flótta­menn sem komu frá stríðs­hrjáðum svæðum í Sýrlandi, Írak og Afganistan. Þrír Búlgarar og einn Afgani hafa verið hand­teknir vegna málsins, og voru þeir leiddir fyrir dómara í gær, og úrskurðaðir í gæslu­varðhald til 29. september, samkvæmt fréttum Reuters.


Three children found in critical condition on refugee truck: APA http://t.co/8wFLCy7CIp


— Reuters Top News (@Reuters) August 29, 2015

Ljóðarleiðtogar Evrópu­ríkja hafa heitið því að bregðast við þeim mikla vanda sem nú blasir við milljónum manna sem flýja í stórum stíl til Evrópu, frá stríðs­hrjáðum svæðum. Þá hafa Sameinuðu þjóðirnar krafist þess að neyðar­starf verði stóreflt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár