Karl Gauti Hjaltason harmar ummæli sín

Þing­maður Flokks fólks­ins biðst afsök­unar á ummælum sem hann lét falla á veit­inga­stað og voru tekin upp, og síðan birt í fjöl­miðlum.

Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður Flokks fólks­ins, seg­ist harma þau ummæli sem hann lét falla á veit­inga­stað, og beindust meðal ann­ars að Ingu Sæland, for­manni fólks­ins.

Upptökur af sam­tölum hans við Mið­flokks­menn­ina Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, Bergþór Ólason og Gunnar Braga Sveins­son og Ólaf Ísleifs­son, sam­flokks­mann hans í Flokki fólks­ins, voru sendar til DV og Stund­ar­innar, sem birtu umfjall­anir upp úr þeim í gær. Samtölin fóru fram 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Í umfjöllun DV, þar sem Karl Gauti kemur við sögu, segir meðal ann­ars: „Þá bar Ingu Sæland oft á góma og hún sögð hafa „grenjað“ sig inn á þing. Þá sagði Karl Gauti Hjalta­son þing­maður Flokks fólks­ins: „Ólafur er örugg­lega sam­mála mér að Inga Sæland getur þetta ekki.“ Þá sagði Gunnar Bragi: „Þið verðið að átta ykkur á að þið getið ekki enda­laust látið madame Sæland grilla ykkur eins og þið séuð ekki til.“ Þá bætti Gunnar Bragi við:

„Eruð það þið sem munið njóta næstu kosn­inga eða Inga?“ Karl Gauti sem er í sama flokki og Inga sagði síðan á öðrum stað að hún gæti ekki stjórnað en hvorki Karl né Ólafur komu for­manni sínum til varnar á meðan á sam­tali þing­mann­anna stóð. Þá sagði Karl Gauti einnig: „Hún getur grenjað um þetta en getur ekki stjórnað.““

Í yfir­lýs­ingu sem Karl Gauti sendi frá sér í nótt, seg­ist hann harma ummæli sín.

„Ég harma ummæli sem ég lét falla á veit­inga­stað fyrir stuttu síðan og hafa birst í nokkrum fjöl­miðlum. Af því til­efni vil ég taka fram að ég er ekki á förum úr Flokki fólks­ins, styð stefnu flokks­ins og ber traust til for­manns hans, Ingu Sæland. Við höfum unnið að ein­urð fyrir kjós­endur okkar og lagt fram mörg góð mál sem við hétum því að vinna að. Karl Gauti Hjalta­son, alþing­is­maður

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár