Öllum opinberum sóttvarnaráðstöfunum aflétt aðfaranótt föstudags

Öllum opinberum sóttvarna­ráðstöfunum, bæði innanlands og á landa­mærum, verður að fullu aflétt aðfara­nótt föstudags.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Engar opinberar sóttvarna­ráðstafanir verða í gildi á Íslandi frá og með miðnætti annað kvöld. Frá þessu greindu Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra og Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra í samtali við fjölmiðla í ráðherra­bústaðnum við Tjarnar­götu eftir ríkis­stjórnar­fund, þar sem aflétting aðgerða var eina málið á dagskrá.

Fram kom í máli ráðherranna tveggja að ákveðin tilmæli til almennings, til dæmis um að halda sig heima ef einkenna er vart, verði áfram í gildi þrátt fyrir að nú falli allar aðgerðir, þar með talin skyldu­einangrun þeirra sem eru með COVID-19, úr gildi.

„Við erum að endur­heimta eðlilegt líf, en veiran er ennþá með okkur,“ sagði forsætis­ráðherra við fjölmiðla eftir ríkis­stjórnar­fundinn.

Notkun PCR-prófa að mestu hætt

Fyrr í dag var sagt frá því í tilkynningu frá sóttvarna­lækni að notkun PCR-prófa yrði að mestu hætt hérlendis, vegna óviðunandi biðtíma á greiningu þeirra, en hann hefur verið 2-3 sólar­hringar að undan­förnu.

Fyrir þau sem eru með einkenni COVID-19 verður nú einungis í boði að fara í hrað­greiningar­próf, hjá heilsu­gæslunni eða hjá einka­fyrirtækjum.

Þeir sem greinast jákvæðir á sjálf­prófum/heima­prófum geta fengið greininguna staðfesta með hrað­greininga­prófi hjá heilsu­gæslunni eða einka­fyrirtækjum, en greining hjá þessum aðilum er forsenda fyrir því að greiningin verði skráð í sjúkra­skrá viðkomandi og forsenda fyrir opinberum vottorðum um smit af völdum COVID-19.

Notkun á PCR-prófum verður framvegis bundin við ábendingar lækna og þá sem eru með alvarleg einkenni eða alvarlega undir­liggjandi sjúkdóma samkvæmt mati læknis. Einnig verða PCR-próf áfram í boði fyrir þá sem þurfa á neikvæðum niður­stöðum slíkra prófa að halda vegna ferðalaga erlendis en þá gegn gjaldi, samkvæmt tilkynningu sóttvarna­læknis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár