Umhverfisstofnun telur að skoða eigi að grafa jarðgöng í stað Sæbrautarstokks

Á meðal umsagnar­aðila um mats­áætlun vegna Sæbrautar­stokks voru Umhverfis­stofnun, sem vill skoða gerð jarðganga á svæðinu í stað stokks og Veitur, sem segja að veitnamál muni hafa mikil áhrif á íbúa á framkvæmda­tíma.

Sæbrautarstokkurinn á að verða um kílómeterslangur.
Sæbraut­ar­stokk­ur­inn á að verða um kíló­met­erslangur. Mynd: Úr matsáætlun

Umhverfis­stofnun telur að það ætti að skoða hvort leggja megi jarðgöng undir Sæbraut í stað þess að grafa þar fyrir umferðar­stokki eins og til stendur að gera. Jarðgöng hafa ekki þótt fýsileg á þessum slóðum, en Umhverfis­stofnun telur þrátt fyrir það að skoða málið og bendir á að jarðgöng þurfi „ekki endilega að fylgja núverandi veglínu“ og hafi þann kost að truflanir á umferð, sem leitt geti til aukinna tafa og aukinnar slysa­hættu, verði lítil.

Þetta kemur fram í umsögn stofnunarinnar um mats­áætlun vegna mats á umhverfis­áhrifum fyrir­hugaðrar gerðar umferðar­stokks, sem Kjarninn fjallaði nýlega um. Skipulags­stofnun veitti Kjarnanum í vikunni aðgang að öllum umsögnum og athuga­semdum sem bárust um mats­áætlunina.

Umhverfis­stofnun segir í umsögn sinni að stofnunin telji að „tregða“ hafi verið hjá bæði Reykja­víkurborg og Vega­gerðinni við að „ráðast í gröft jarðganga eða skoða slíka kosti af alvöru þegar um sambærilegar framkvæmdir er að ræða“ á höfuð­borgar­svæðinu og nefnir stofnunin sem dæmi „jarðgöng sem tengja áttu Sæbrautina og Land­spítalann en voru slegin af“.

Benda á að Litlahlíðin hafi reynst snúin

Í umsögn Umhverfis­stofnunar er einnig sett fram ábending um að framkvæmd í borginni, sem kalla mætti mjög smáa í saman­burði við umfang fyrir­hugaðs Sæbrautar­stokks, hafi reynst „nokkuð snúnari í framkvæmd en ætlað var“ og sé þegar komin fram yfir áætlaðan verktíma.

Þarna á stofnunin við Litluhlíð á milli Eskitorgs og Bústaða­vegar, sem snerust um gerð lítils stokks fyrir umferð gangandi og hjólandi vegfarenda undir Litluhlíðina. Þar hófust framkvæmdir vorið 2021 og lokaðist leið bæði akandi umferðar og leiðir gangandi og hjólandi um svæðið á þeim tíma. Akandi umferð komst aftur á rétt fyrir jól, en endanleg verklok voru ekki áætluð fyrr en í síðasta mánuði.

Í þeirri framkvæmd urðu tafir vegna framkvæmda á vegum Veitna, en breyta þurfti stórum flutnings­æðum hitaveitu, sem fara um svæðið. Ekki var hægt að vinna það verk að vetrar­lagi og því var allt stopp í þrjá mánuði, samkvæmt tilkynningu borgarinnar.

Veitnamál muni hafa „mikil áhrif“ á íbúa á áhrifasvæði

Flækju­stig Sæbrautar­stokksins er töluvert meira og umfang framkvæmdarinnar líka, einnig hvað veitnamál varðar, eins og lesa má í umsögn Veitna til Skipulags­stofnunar um mats­áætlun framkvæmdarinnar. Fyrir­tækið segir ljóst að framkvæmdin komi til með að hafa „mikil áhrif á veitu­kerfin og þar af leiðandi á íbúa á áhrifa­svæði verk­efnisins“.

Veitur koma því á framfæri í umsögn sinni að fráveita þveri Sæbrautina á þremur stöðum þar sem fyrir­hugað er að grafa fyrir umferðar­stokknum. „Á öllum þessum stöðum er hæðarlega fráveitu­kerfis þannig að virkni kerfisins er í uppnámi vegna framkvæmda við vegstokkinn. Fráveitu­kerfið í Barðavogi við gatna­mótin við Snekkjuvog kemur einnig til með að vera í uppnámi á framkvæmda­tíma,“ segir í umsögn fyrir­tækisins.

Þar segir einnig að flutnings­kerfi hitaveitu liggi austan við Sæbraut, stofnlögn vatns­veitu vestan við hana, auk þess sem 11 kílóvolta háspennu­strengur liggi í miðeyjunni á umræddu svæði. „Lagnirnar og strengurinn lenda í uppnámi vegna væntanlegs vegstokks á Sæbraut,“ segja Veitur.

Sömuleiðis liggur 132 kílóvolta háspennu­strengur og Sogaræsi við suðurenda stokksins og segja Veitur „mikilvægt“ að strengurinn og ræsið „lendi ekki í uppnámi vegna framkvæmd­anna“.

Veitur segja annars að vinna við forhönnun og valkosti fyrir nýjar lagna­leiðir standi yfir. Fyrir­tækið segir í umsögn sinni að það sé mikilvægt að „tryggja nægt pláss fyrir lagna­leiðir meðfram vegstokknum og þá sérstak­lega í ljósi umræðna um frekari þéttingu byggðar meðfram stokknum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár