Smitvarnir auknar á Alþingi

Auka þarf smit­varnir á Alþingi eftir að sex starfs­menn, sem allir vinna í sama húsi, og einn þingmaður, Smári McCarthy þingmaður Pírata, eru smitaðir af kóróna­veirunni. Aðeins þeir þingmenn, sem þurfa að taka þátt í umræðum á þing­fundum hverju sinni, verði í Alþingis­húsinu.

Alþingi
Alþingi Smit­varnir verða auknar á Alþingi.

Auka þarf smit­varnir á Alþingi eftir að Smári McCarthy, þingmaður Pírata, og sex starfs­menn Alþingis, sem allir vinna í sama húsi, reyndust smitaðir af kóróna­veirunni. Mælst er til þess að aðeins þeir þingmenn, sem þurfa að taka þátt í umræðum á þing­fundum hverju sinni, séu í Alþingis­húsinu og nefnda­fundir munu fara fram með fjarfunda­búnaði. Þá hefur verið ákveðið að einungis það starfs­fólk Alþingis, sem þarf að sinna verkefnum á þing­svæðinu, mæti til vinnu.

Þetta kemur fram í tölvu­pósti sem viðbragðsteymi Alþingis sendi þing­mönnum og starfs­fólki seint í gærkvöldi. Þar er fólk ennfremur hvatt til þess að halda sig heima, finni það fyrir flensu­einkennum.

Fjórir eru í fyrir­skipaðri sóttkví, þingmenn og starfs­fólk, og að auki eru nokkrir þingmenn og starfs­menn í sjálf­skipaðri sóttkví vegna persónulegra heilsufars­ástæðna sinna eða nákominna.

Smári McCarthyHann er nú í ein­angrun eftir að hafa greinst með COVID-19 smit.

Smári McCarthy segir á facebooksíðu sinni að hann hafi farið í sjálf­skipaða sóttkví fyrir viku eftir að hann hafi farið að hósta og á föstu­daginn hafi hann verið greindur með COVID-19 smit. Þar segist Smári vera hress og að einkennin séu væg. Hann muni reyna að sinna þing­störfum eftir bestu getu. Hann skrifar ennfremur að hann viti ekki hvar eða hvernig hann hafi smitast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár