Bandarískum fyrirtækjum skylt að upplýsa um launamun milli forstjóra og starfsmanna

Bandaríska verðbréfa­eftirlitið, SEC, samþykkti í dag nýja reglu sem skyldar fyrirtæki til þess að birta opinber­lega upplýsingar um launamun milli forstjóra fyrir­tækis og dæmigerðs starfs­manns þess. Stjórn verðbréfa­eftirlitsins samþykkti regluna með þremur atkvæðum gegn tveimur en Mary Jo White, stjórnar­formaður eftirlitsins, hefur verið undir miklum þrýstingi frá stéttar­félögum og hópi Demókrata um að innleiða regluna. White og tveir Demó­kratar í stjórninni samþykktu innleiðingu reglunnar.

Tveir fulltrúar Repúblikana í stjórninni lögðust gegn breytingunum. Þeir telja regluna þjóna þeim tilgangi einum að gera lítið úr forstjórum fyrir­tækja og telja upplýsingar ekki gagnast fjár­festum að nokkru leyti. Demó­kratarnir telja aftur á móti að upplýsingarnar gagnist hluthöfum við að ákvarða laun forstjóra. Frétta­stofa Bloomberg greinir frá í dag. Í umfjöllun Bloomberg eru þessar nýju reglur sagðar færa nýtt vopn í hendur þeirra sem berjast gegn aukinni misskiptingu tekna.

Reglu­breytingarnar taka gildi í ársbyrjun 2017. Frá þeim tíma munu bandarísk fyrirtæki þurfa að upplýsa um meðallaun starfs­manna að forstjóranum undan­skildum, laun forstjóra auk hlutfalls launa hans af meðal­launum starfs­fólks.

Fram kemur í umfjöllun Bloomberg að meðallaun forstjóra 350 stærstu fyrir­tækja Banda­ríkjanna jukust um 997 prósent frá 1978 til 2014. Á sama tímabili jukust laun almennra starfs­manna um 10,9 prósent. Árið 1978 voru laun æðstu stjórn­enda fyritækja um 30 sinnum hærri en dæmigerðs starfs­manns, en voru í fyrra um 300 sinnum hærri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár